Föstudagur, 26. febrúar 2016
Forseti ASÍ - hrunadansins - ESB
Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ hjólar í bændur og samtök þeirra vegna nýgerðra kjarsamninga þeirra og umgjörð búvöruframleiðslunnar:
"Samningarnir eru vondir bæði fyrir bændur og neytendur og ég treysti því að bæði Alþingi og bændur hafni þeim," segir forseti ASÍ. Þingið hafni vondum samningi
Ekki veit ég til þess að forystumenn bænda hafi veist að ASÍ vegna kjarasamninga á þeirra vettvangi. Hefði oft verið ærin ástæða til m.a. vegna þess hve illa ASÍ hefur haldið á málum í kjarabaráttu fyrir þá lægstlaunuðu í samfélaginu.
Ég ætla ekki að leggja mat á nýgerðan búvörusamning.En mikilvægt er að horft sé heildstætt á allar greinar landbúnaðar og matvælaframleiðslu í landinu og til þeirra sem þar starfa.
Það sem mér finnst hinsvegar sérstakt er frjálsleg yfirýsingagleði forystu ASÍ. En að sjálfssögðu er sem betur fer öllum frjálst að tjá skoðanir sínar í þessum efnum sem öðrum
Í yfirlýsingu ASÍ er helst harmað að ekki skuli opnað enn meir fyrir tollfrjálsan innflutning á landbúnaðarvörum og þá væntanlega á hráu ófrosnu kjöti.
Engum en ASÍ ætti þó að vera betur ljósar afleiðingarnar af slíkum gjörningi fyrir atvinnuöryggi fjölda fólks í matvælaiðnaðnum á Íslandi. Hver gefur stjórn ASÍ umboð til að álykta með umræddum hætti?
Forseti ASÍ sýnist lifa og hrærast enn í því allsherjarugli sem viðgekkst árið 2007 og virðist nú verið að endurvekja. Eru almennir félagsmenn því sammála?
Hvenær ætlar Gylfi Arnbjörnsson og aðrir í forystu ASÍ að gera upp fortíð sína frá fyrirhrunstímanum og hlut þeirra í þeim Mammonsdansi sem setti fjármálakerfi landsins á hliðina og leika enn lausum hala.
Ég hlustaði á innblásnar ræður Gylfa Arnbjörnssonar forseta ASÍ á þeim tíma m.a. á 1. maí þar sem gerð var krafa um inngöngu í Evrópusambandið, ekki seinna en strax. Allt ætti að vera svo grænt og fallegt þegar inn í ESB væri komið.
Og var ekki svo að ASÍ setti það sem hluta af kröfum í kjaraviðræðum að aðlögun og innganga í Evrópusambandið væri keyrð áfram af fullum hraða.
Er forseti ASÍ kannski enn þeirrar skoðunar eins og hann var á árunum 2007 -2014 að Ísland væri nú betur komið inni í Evrópusambandinu en utan?
Sem betur fór tókst að koma í veg fyrir frekari aðlögun og inngöngu í ESB og forseta ASÍ varð ekki að þeirri ósk sinni.
Einhvern veginn finnst mér þó að þessi yfirlýsing forystu ASÍ um búvörusamningana endurspegli gamla ESB drauginn sem menn þar á bæ fóstruðu og vilja nú endurvekja í umræðunni um landbúnaðinn. Það er kominn tími til að ASÍ hafi lært sína ESB lexíu og dragi lærdóm af mistökunum.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 11. febrúar 2016
Óábyrgt að leyfa innflutning á hráu kjöti og hræsni að vísa til neytendahagsmuna
Hvort á að ráða íslensk lög og dýrmætir hagsmunir þjóðarinnar eða hráar tilskipanir ESB og græðgi innflutningsfyritækja?
"Sérfræðingur í útbreiðslu sýklalyfjaónæmra baktería segir ábyrgðarlaust ef stjórnvöld ætla að fara þegjandi eftir úrskurði EFTA-dómstólsins og leyfa innflutning á hráu kjöti til landsins. Hann segir hræsni talsmanna innflutnings að vísa til neytendahagsmuna".
Vilhjálmur Ari Arason, læknir er í ítarlegu viðtali við nýjasta Bændablað.
Þriðjudagur, 9. febrúar 2016
Aðeins tveir ESB þingmenn mættir ?
Fundur sameiginlegrar þingmannanefndar Alþingis og Evrópuþingsins stendur nú yfir í Reykjavík.
Fjölmiðlar flytja fjálglega fréttir af fundinum. Formaður nefndarinnar Guðlaugur Þór Þórðarson vildi að nefndin ályktaði um samstöðu í refsiaðgerðum gegn Rússum og að ESB mæti framlag Íslands í þeim efnum t.d. með tímabundnum tollalækkunum á vörum frá Íslandi til að bæta skaðann sem viðskiptabann Rússa veldur Íslendingum (MBL: Vill að nefndin álykti um samstöðu
Varaformaður nefndarinnar, Jörn Dohrmann efaðist um að fundurinn væri heppilegur til slíkra ályktana þar sem aðeins tveir þingmenn frá Evrópuþinginu væru viðstaddir fundinn !!.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 6. febrúar 2016
Evrópusambandið er ekki matseðill
Evrópusambandið er ekki matseðill sem hægt er að velja bestu bitana af en sleppa sleppa hinu. Þetta kom fram í máli Martins Schulz, forseta Evrópuþingsins, í ræðu sem hann flutti í London School of Economics í dag. Vísaði hann þar til viðræðna breskra stjórnvalda við Evrópusambandið um breytta skilmála fyrir veru Bretlands í sambandinu. (Mbl. greinir frá
" Evrópusambandið ekki matseðill
Það voru hinsvegar rök margra þeirra sem samþykktu umsókn um aðild að Evrópusambandinu á Alþingi 2009. Alltaf hefur legið ljóst fyrir að ekkert slíkt er í boði, annaðhvort allt eða ekkert. Það hefðu þeir þingmenn átt að vita fyrir sem samþykktu umsóknina á Alþingi á sínum tíma en héldu svo öðru fram. Tvískinnungur þingmanna í ESB málinu hefur átt stóran þátt í að rýra traust almennings á Alþingi.
Tvískinnungur alþingsmanna rýrir traust Alþingis
Forystumenn Samfylkingar og Vinstri grænna halda því enn fram að ljúka eigi samningum um inngöngu í Evrópusambandið. Þeir lifa enn í þeirri trú að hægt sé að velja góðbitana úr og sleppa öðrum bragðvondum. "Evrópusambandið er ekki matseðill þar sem gestirnir geta valið úr" sagði forseti Evrópuþingsins við Breta í dag. Það er flestum óskiljanlegt að flokkur sem telur sig andvígan inngöngu í Evrópusambandið og vill segja sig úr Nató en getur ekki stutt afturköllun umsóknarinnar að ESB.
Framsókn og Sjálfstæðisflokkur lofuðu því fyrir kosningar að afturkalla umsóknina að ESB en úr varð bréf sem enginn skilur. Evrópusambandið sjálft telur umsóknina virka og í fullu gildi.
Þriðjudagur, 2. febrúar 2016
Mynd dagsins frá Landakotsspítala - ábyrgðarleysi í stjórnun
Myndin frá Landakoti sem sýnir rotnandi glugga og myglaða veggi er bæði óhugguleg og ótrúleg. Það er samt ansi langt seilst að kenna bara fjárskorti um. Mér finnst ekki síður og miklu frekar um hreinan stjórnunarvanda og vanrækslu í stjórn spítalans að ræða. Hvernig væri að ráða góðan húsvörð og ræstingarfólk sem vinnur á ábyrgð spítalans og lýtur staðarstjórn.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 3.2.2016 kl. 12:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 1. febrúar 2016
Hráakjötið - EES - stjórnarskráin
Réttur þjóðar til að verja fæðuöryggi sitt og heilbrigði einstaks búfjár á að vera í höndum innlendra stjórnvalda.
Það að Eftadómstóllin þykist hafa ráðgefafndi stöðu til leyfa óheftan innflutning á hráu ófrosnu kjöti til Íslands gengur þvert gegn íslenskum lögum og þjóðarhagsmunum.
Ástralía og Nýja Sjáland eru heppin að vera ekki EES. En reglur þar til að vernda þarlenda matvælaframleiðslu og heilbrigði dýrastofna eru miklu harðari en hér. Innflutningsbann samrýmist ekki EES
Við erum ekki verið að banna innflutning á kjötvörum heldur að tryggja að fyllsta öryggis sé gætt gagnvart heilbrigði íslenskra dýrastofna.
EES samningurinn var á sínum tíma afmarkaður um viðskipti með tiltekna vöruflokka. Þeir sem að honum stóðu sýndu reyndar valdníðslu, mikið kæruleysi og litla þekkingu á fullveldishagsmunum Íslands.
Enda þorðu þeir ekki að leggja EES -samninginn í dóm þjóðarinnar þótt stór hluti hennar hafi skrifað undir áskorun um þjóðaratkvæðagreiðslu.
En síðan hefur þá hefur samningurinn víkkað út annarsvegar vegna stöðugrar eftirgjafar íslenskra stjórnvalda og hinnvegar að felld hafa verið undir hann æ fleiri svið sem ekki heyrðu til hans í upphafi. EES samningurinn gengur nú þegar í mörgu gegn stjórnarskránni.
Íslensk lög kveða skýrt á um að innflutningur á hráu ófrosnu kjöti er óheimill. Það er mjög sérkennilegt og verulegt hættumerki ef EES samningurinn á að standa ofar öryggismálum Íslands og íslenskum lögum.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)