Öflugur Landsfundur Vinstri grænna.

 Landsfundur  Vinstri grænna um síðustu helgi var  gríðaröflugur og  sá fjölmennasti í sögu hreyfingarinnar. Vinstri græn eru nú komin í ríkisstjórn eftir að Sjálfstæðisflokkur og Samfylking höfðu  lagt árar í bát og gefist upp á landsstjórninni.  

Það urðu öllu félagshyggju fólki mikil vonbrigði þegar Samfylkingin gekk beint í faðm Sjálfstæðisflokksins eftir síðustu kosningar.  En nú er 18 ára samfelldum stjórnartíma Sjálfstæðisflokksins lokið og er það einlæg ósk þjóðinni til handa að sá flokkur standi utan stjórnar  a.m.k. næstu 18 árin. 

Gjaldþrot Nýfrjálshyggjunnar,  siðferðislega og efnahagslega hefur kallað yfir þjóðina og stóran hluta hins vestræna heims mestu hamfarir af  manna völdum á síðustu öldum ef frá eru taldar heimstyrjaldirnar  þar sem barist var með vopnum og saklaust fólk lét lífið milljónum saman.

Margir týndu sér í græðginni og hlupu eftir bergmálinu.  Það fólk er nú á leið heim til hinna sönnu gilda félagshyggju , samhjálpar og nægjusemi.  Þangað sem vinir, vandamenn og fjölskylda, náttúran og nærumhverfið skipti höfuðmáli. Krafturinn og ólgandi löngun til að láta til sín taka í að byggja upp nýja Ísland  einkenndi landsfund Vinstri  grænna. Heiðarleiki og traust voru einkunnarorð landsfundarins.  Samstaða og samhugur-  Einn fyrir alla og allir fyrir einn voru  m.a. slagorð Ungmennafélaganna og Samvinnumanna. Þau gerum við nú að okkar.  

Vinstri græn stóðu vaktina og börðust gegn þeim öflum sem leiddu hrunadansinn yfir okkur. 

 Vinstri græn munu nú  af ábyrgð og heiðarleika leiða uppbyggingu næstu ára á grunni nýrra hugsjóna þjóðinni til farsældar.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband