Öðruvísi mér áður brá

Frumvarp  um lagareldi sem nú liggur fyrir aþingi er með hreinum ólikindum,

Þar er lagt til að festa í lög heimildir fyrir ótímabundnum  rekstrarleyfum til fiskeldis í fjörðum landsins. 

Leyfin verði bæði framseljanleg og framleigjanleg eins og hver önnur "brask" vara í viðskiptum.

  Takmarkaðar kröfur eru settar til varnar umhverfisins, mengunar eða lífríkis í nágrenni eldistöðva.

Eldi verður áfram heimilað á frjóum  erlendum eldislaxi sem getur spillt náttúrulegum laxastofnum í ám landsins

Hvað sem líður öllum öðrum þáttum frumvarpsins sem ýmsir geta verið til bóta, vantar grunnhugsjónina um varúð og verndun lífríkis og að leyfisveitingar séu tímabúndnar  undir  ströngum skilyrðum og miklu eftirliti.

Ef á annað borð á að leyfa laxeldi í sjó við Ísland.

Þá eru hagsmunir þeirra byggða að vel sé til vandað og tekjurnar renni til heimahéraða.

Bótakröfur- ábyrgð- viðurleg 

Hvergi er í frumvarpinu  minnst á að fyrirtæki þurfi að leggja fram í upphafi staðfestar og viðurkenndar tryggingar fyrir hugsanlegum skaðabótum ef mistök verða.

 Sú hugmyndafræðilega nálgun sem Vinstri hreyfingin grænt framboð stóð fyrir á sínum tíma og ég minnist sem þingmaður og ráðherra málaflokksins virðist lítt sýnileg í þessu frumvarpi. 

Gengur þvert á grunngildi VG

 Flest grundvallaratriði sem frumvarpið byggir á ganga þvert gegn stefnu Vg  sem m.a. ég barðist fyrir sem talsmaður flokksins í sjávarútvegsmálum og ráðherra þess málaflokks um tíma.

Því finnst mér með ólikindum að það skulu vera ráðherrar Vg sem leggi frumvarpið fram í þessum búningi,

Sjálfstæðismenn og Framsóknarþingmen verja grimmt hagsmuni sinna

Sjálfstæðisþingmenn reyndust mér sem ráðherra  harðdrægir sem á sínum tíma - gengu m.a. út af þingfundi í atkvæðagreiðslu um strandveiðar til þess að reyna að stöðva málið í þinginu . Framsóknamenn sátu þó hjá við málið  eftir mikla andstöðu.

En samt er mér til efs að ráðherra Sjálfstæðisflokksins hefði þorað sjálfir að leggja fram slíkt frumvarp sem þetta

Frumvarp sem fæli í sér ótímabundinn, framseljanlegan nýtingarrétt á auðlindum og náttúru innfjarða á Íslandi.

Því hefði örugglega ekki verið tekið andmælalaust af þingmönnum Vg á þeim tíma.

Ráðherra getur kallað málið til baka úr þinginu

Vonandi sjá menn að sér, biðjast afsökunar og ráðherra afturkalli frumvarpið til þess að vinna það betur. 

Rétt er að minnast fyrstu greinar laga um stjórn fiskveiða. 

Þar er kveðið skýrt að orði:

“Nytjastofnar á Íslandsmiðum eru sameign íslensku þjóðarinnar. Markmið laga þessara er að stuðla að verndun og hagkvæmri nýtingu þeirra og tryggja með því trausta atvinnu og byggð í landinu. Úthlutun veiðiheimilda samkvæmt lögum þessum myndar ekki eignarrétt eða óafturkallanlegt forræði einstakra aðila yfir veiðiheimildinni.”

 Náttúran- lífríkið - fjölbreytileikinn á sinn eigin rétt og varúðarregluna ber að virða.

Það ráðstafar enginn þjóð lífríkisauðlindum sínum ótímabundið , sama hverjir eiga í hlut

Baráttumál Vg meðan ég var sjávarútvegsráðherra var að  halda forræði auðlindarinnar hjá þjóðinni og nýtingarréttur væri ávalt tímabúndinn og og ráðstöfun hans  væri hjá þjóðinn- -alþingi og ríkistjórn. 

 


"Samlifandi" forsetar

Hart var tekist á í forsetakosningum 1968.

Þeir Kristján Eldjárn þjóðminjavörður og Gunnar Thoroddsen  fyrrverandi borgarstjóri, ráðherra, hæstaréttardómari og sendiherra börðust um stólinn.

Báðir miklir atgervismenn en af ólíkum sviðum.

Kristján Eldjárn hafði betur

"Samlifandi" forsetar

Á framboðsfundi í Stykkishólmi 1968 hjá Gunnari Thoroddsen  spurði Guðmundur Guðjónsson á Saurum, minn gamli barnakennari:

"Getur komið til greina að þið Kristján Eldjárn verðið "samlifandi" forsetar Íslands" ?

Fáir skildu spurninguna þá, en Gunnar Thoroddsen tók því af og frá. Það kæmi aldrei til,

Viti menn Kristján Eldjárn verður forseti en  Gunnar Thoroddsen verður forsætisráðherra í mars 1980 

Kristján Eldjárn er forseti til 1. ágúst 1980

Þar með verður Gunnar Thoroddsen sem forsætisráðherra einn af handhöfum forsetavalds við fjarvist sitjandi forseta Kristjáns Eldjárns fyrrum keppinauts,

Rættist sú spá Guðmundar Guðjónssonar á Saurum 12 árum áður um að Gunnar Thoroddsen og Kristján Eldjárn yrðu "samlifandi" með forsetavald á Íslandi .

Það er því ýmis skondin staða sem getur komið upp um hverjir verða "samlifandi" handhafar forsetavalds á Íslandi á næstu misserum.

 Katrín Jakopsdóttir og Bjarni Benediktsson gætu t.d. orðið  "samlifandi" handhafar forsetavalds á Íslandi innan tíðar

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband