Hrundansinn - eða ??

Meðan Seðlabankinn varar við verðbólgu og biður fólk að draga úr neyslu, verkalýðsforingar tala um stríðshanska,  Bankar, matvælakeðjur, tryggingafélög, fasteignafélög greiða eigendum sínum út hærri arð sem aldrei fyrr.

Reykjavíkurborg vill reka burt flugvöllinn og "réttir landsbyggðinni fingurinn",

Fjármálaráðherra selur vinum og kunningjum banka. Grunnfjarskipti landsmanna seld til útlendra auðjöfra.

Vísir kemur með góðar fréttir fyrir peningastefnunefnd.

Landsmenn, þeir sem betur mega sín ætla hvorki að hlusta á varnaðarorð seðlabankastjóra né formanns VR ef marka má þessar fréttir Vísis í dag. 

Seðlabankastjóri  bendir á að vextir bankans séu sögulega enn lágir og fjöldi fólks hafi náð að fjárfesta í íbúð  með lánum á góðum kjörum  eins og að var stefnt. Og horfur séu í sjálfu sér bjartar þótt aðgát sé þörf  

Tveir heimar eða er heimsendir á næsta leiti 

Ölgerðin hélt lang­þráða árs­há­­tíð í tékk­neskum kastala

Eiður Þór Árnason skrifar 4. maí 2022 14:19
Spænski salurinn í Prag kastala er einkar glæsilegur. Spænski salurinn í Prag kastala er einkar glæsilegur.AÐSEND

Árshátíð Ölgerðarinnar var haldin með pompi og prakt í Prag í Tékklandi á laugardag þar sem 450 starfsmenn komu saman í Prag kastala. Það færist nú í aukana að fyrirtæki haldi starfsmannafögnuði sína á erlendri grundu en skömmu á undan Ölgerðinni hélt verkfræðistofan Efla árshátíð sína í Marrakesh í Marokkó.

Árshátíð Ölgerðarinnar fór fram í spænska salnum svokallaða, hátíðarsal sem hefur meðal annars verið notaður fyrir móttökur Tékklandsforseta. Salurinn var byggður á árunum 1602 til 1606 og er með tólf metra lofthæð en kastalann má finna á heimsminjaskrá UNESCO. Eva Ruza og Hjálmar Örn sáu þar um veislustjórnun og Siggi Gunnars þeytti skífum.

Þetta var í fyrsta sinn í þrjú ár sem Ölgerðin hélt árshátíð og segir Jóhanna Laufdal Friðriksdóttir, mannauðsstjóri fyrirtækisins, að heimsfaraldurinn hafi auðvitað sett þar strik í reikninginn líkt og hjá öðrum stórum fyrirtækjum. Ölgerðin hafi þess í stað lagt fé til hliðar í árshátíðarsjóð og svo nýtt tækifærið til þess að fara utan.

Mikið líf og fjör var á laugardagskvöld. AÐSEND

„Með þessu þakkaði Ölgerðin starfsfólkinu sínu fyrir frábæra vinnu við þær afar krefjandi aðstæður sem ríkt hafa undanfarin misseri og hafa meðal annars kostað það að starfsfólkið hefur ekki getað haldið árshátíðir eða komið saman,“ segir Jóhanna. Óhætt sé að segja að starfsfólkið hafi skemmt sér konunglega um helgina.

Íslendingar orðnir ferðasjúkir

Þór Bæring Ólafsson, annar eigenda ferðaskrifstofunnar Komdu með, segir að það hafi færst mjög í aukana eftir afléttingar sóttvarnatakmarkanna að fyrirtæki reyni að gera vel við starfsfólk sitt og leggi land undir fót.

„Það er búið að vera hálfgerð sprenging í þeim efnum. Það eru ansi mörg fyrirtæki sem eru akkúrat í þessari stöðu núna að vilja fara út með fólkið enda ekki búið að fara neitt í tvö til þrjú ár og margir ekki einu sinni búnir að halda árshátíð svo eðlilega er reynt að gera þetta svolítið flott núna.“

Siggi Gunnars hélt uppi fjörinu.AÐSEND

Þór segir að Komdu með hafi skipulagt um tíu slíkar árshátíðir fyrir íslensk fyrirtæki upp á síðkastið og fjölmargar ferðir séu á dagskránni í haust. 

„Þetta er að vakna aftur til lífsins, það er alveg á hreinu.“

Misjafnt sé hvert fyrirtæki séu að fara en stærri fyrirtæki á borð við Ölgerðina taki oftast leiguvélar undir starfsfólk sitt. Auk þess að skipuleggja ferðir til Prag hefur fyrirtæki Þórs farið með starfsmannahópa á árshátíðir í Alicante, London, Berlín, París og Kaupmannahöfn og Split í Króatíu. Þá hefur fréttastofa upplýsingar um að fyrirtæki hafi sömuleiðis gert sér ferðir til Amsterdam og Brighton á Englandi.

Spænski salurinn var kláraður árið 1606 og hefur verið vel haldið við. AÐSEND

Þór segir að í flestum tilvikum séu þetta helgarferðir þar sem fólk gisti í tvær eða þrjár nætur erlendis. Utanlandsferðirnar einskorðist ekki við ákveðin svið íslensks atvinnulífs heldur sé um að ræða fjölbreyttan hóp fyrirtækja.

„Mér finnst vera mikill vilji hjá starfsmannafélögum, sem eru oft búin að safna upp peningum, til að gera eitthvað fyrir starfsfólkið. Það er mikill ferðavilji hjá fólki. Íslendingar eru bara ferðasjúkir núna.“

  Þetta eru í sjálfu sér eins og endurbirtar myndir frá árunum 2007 og 2008. Lífið er lag 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband