- VG út úr skápnum -

„Á sama tíma kom VG út úr skápnum sem einhverskonar krataflokkur með áherslur á kvenfrelsi og umhverfismál. Það er ekki að sjá á samþykktri stjórnmálaályktun flokksins að hann sé róttækur vinstri flokkur, sem er samt sú skilgreining sem margir flokksmenn hans vilja kenna sig við“.

Þannig kemst leiðarahöfundur Fréttablaðsins að orði 27. febr. sl og ræður sér ekki fyrir kæti yfir kúvendingu landsfundar Vinstri grænna á stefnuskrá flokksins í ESB málum.  Kvenfrelsismál og umhverfismál eru mikilvægar grunnstoðir VG en með því að samþykkja áframhald aðlögunar að ESB og klára það ferli er flokkurinn (VG) „allt í einu orðinn möguleiki í þriggja flokka stjórn með Bjartri framtíð og Samfylkingu“.

Og leiðarahöfundurinn, Þórður Snær Júlíusson er heiðarlegur og bjartsýnn fyrir hönd ESB-sinna:

 „Að lokum er ljóst að innan bæði Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks eru margir Evrópusinnar. Þeir gætu ákveðið að kjósa áframhaldandi viðræður“.

Og skiljanlega er ritstjórinn himinlifandi og fagnar niðurlægingu landsfundarins gagnvart þeim hugsjónum sem VG var stofnað um en leiðaranum líkur þannig:

 „ Hinsvegar er möguleg þriggja flokka stjórn tveggja keimlíkra frjálslyndra jafnaðarmannaflokka og vinstri flokks, sem er að mörgu leyti hættur að haga sér eins og vinstriflokkur, með áframhaldandi aðildarviðræður sem aðalmál. Þetta verður athyglisvert.“

Leiðarhöfundur Fréttablaðsins sem er þekkt sem málgagn þeirra sem vilja ganga í ESB , getur talað um hlutina tæpitungulaust og hefur ekkert að fela.Það minnir okkur jafnframt á að ESB umsóknin er á fullri ferð, öll vinna á fullum hraða þó svo reynt sé að blekkja með því að hlé hafi verið gert á vinnu við samningsafstöðu í sjávarútvegi og landbúnaði.

Að sjálfsögðu réðu flokkarnir ekki við þá vinnu póltískt í aðdraganda kosninga og því var nauðsynlegt að þyrla upp þessu ryki um hlé á viðræðum, sem er því miður alrangt.

Það er mikil alvara á ferð

Rétt er að rifja upp að Vinstrihreyfingin grænt framboð var stofnað til að standa vörð um frjálst og fullvalda Ísland og berjast gegn umsókn og aðild að ESB og á þeim forsendum fórum við, frambjóðendur VG í kosningarnar 2009 og unnum stórsigur. Því miður var sú stefna og þau kosningaloforð brotin með umsókninni að ESB vorið 2009. Því ferli átti hinsvegar að vera lokið vel innan kjörtímabilsins samkvæmt yfirlýsingu margra þeirra sem guldu já við að senda umsóknina til ESB.

Með landsfundarsamþykkt sinni núna um áframhaldandi aðlögun og aðildarvinnu að ESB er gengið þvert á grunngildi og hugsjónir Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs, hugsjónirnar sem flokkurinn var einmitt stofnaður um. Er nema vona að kratarnir gleðjist.

Jafnframt er sú staðreynd herhvöt til okkar allra, þeirra sem hafna þessu ferli og vilja standa vörð um frjáls og fullvalda Ísland.

ESB hefur sitt á hreinu

Afstaða ESB er og hefur alltaf verið ljós.

Þar er ekkert til sem heitir að "kíkja í pakkann" í eitt ár til og það vita líka þeir stjórnmálamenn sem stóðu að tillöguflutningnum á landsfundi Vinstri grænna:

„Í fyrsta lagi er mikilvægt að undirstrika það að hugtakið samningaviðræður getur verið misvísandi. Aðildarviðræður snúast um skilyrði fyrir og tímasetningar á upptöku umsóknarlands á reglum ESB, framkvæmd þeirra og beitingu. Um þessar reglur verður ekki samið.“[1]

„First, it is important to underline that the term "negotiation" can be misleading. Accession negotiations focus on the conditions and timing of the candidate's adoption, implementation and application of EU rules - some 90,000 pages of them. And these rules ... are not negotiable.“ Þetta vita íslenskir stjórnmálmen og því eiga þeir að tala hreint út.

[2] [1]

 

Sjáfstæði þjóðar og fullveldi

Það á ekki að „ kíkja í pakkann“ eða fara með blekkingar gangvart þjóðinni þegar fullveldi hennar er annarsvegar. Þessa umsókn á einfaldlega að draga til baka og snúa sér að öðrum mikilvægum og brýnum verkefnum fyrir almenning í landinu. Samninga á aðeins hefja að nýju hafi þjóðin samþykkt í þjóðaratkvæðagreiðslu fyrirfram að óska eftir inngöngu í ESB.

[1] https://postur.althingi.is/owa/?ae=Item&a=New&t=IPM.Note#_ftnref1

[1] http://ec.europa.eu/enlargement/pdf/publication/enl-understand_en.pdf

 

Byggt á grein sem grein í Fréttablaðinu 28.02. 2013 . jb


 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband