Danska ríkisstjórnin milli steins og sleggju í makríldeilunni


Nánast engar líkur eru taldar á því að Danir ráði við að opna á aðildarviðræður ESB við Íslendinga um sjávarútvegsmál. Til stóð að opna á viðræður sl. haust en því hefur ítrekað verið frestað og nú síðast vegna deilna um rétt Íslendinga til makrílveiða. Danir fara með formennsku í ESB þar til í júnílok á þessu ári og höfðu lýst áhuga sínum að opna á viðræður. Sú tímaáætlun sem gefn var út í upphafi umsóknarinnar um viðræður er löngu runnin út í sandinn.

Ríkisstjórn Dana hefur mjög tæpan meirihluta á þingi og fellur ef Færeyingar og Grænlendingar hætta stuðningi við hana.

Færeyski þingmaðurinn Sjurður Skaale hefur sagt opinberlega við fjölmiðla að verði Færeyingar knúðir til samninga um makrílveiðar með þvingunum af hálfu ESB muni Færeyingar hætta stuðningi við stjórnina sem þar með fellur. Það eru því ekki aðeins Íslendingar sem hafa mætt óbilgirni og hótunum frá ESB vegna makrílveiðanna heldur hefur Færeyingum jafnframt verið hótað víðtækum viðskiftabönnum vegna makrílveiða þeirra.http://www.fiskerforum.dk/erhvervsnyt/erhvervsnyhed.asp?nyId=3230

ESB hótar sem fyrr
ESB hefur sett skilyrði fyrir samningum við Íslendinga um makrílveiðar sem eru með öllu óaðgengilegar og myndu kosta þjóðarbúiið milljarða í töpuðum tekjum. ESB fylgir óbilgirni sinni eftir með hótunum um víðtækar viðskiftaþvinganir. Sjávarútvegsráðherra Íra segir það sína skoðun að ekki eigi að opna á aðildarviðræður við Íslendinga um sjávarútvegsmál fyrr en íslendingar hafa beygt sig fyrir kröfum ESB í makríldeilunni. Fleiri forystumenn í ESB löndum hafa lýst sömu skoðun og krafist eftirgjafar Íslendinga.
Danska ríkisstjórnin stendur mjög veikt í þessum málum því meirihluti hennar styðst við þingmenn Grænlendinga og Færeyinga á danska þjóðþinginu. Þingmenn þeirra, geta velt ríkisstjórninni hvenær sem er, gangi ESB á hagsmuni landanna og þeir munu vafalaust ekki hika við að gera það ef á reynir.
Samkvæmt FiskerForum.com hefur færeyski þingmaðurinn Sjúrður Skaale bent ráðherrum i ríkisstjórn Danmerkur á þessa stöðu, ef hún lætur undan kröfum ESB um að beita Færeyinga ofríki og viðskiftaþvingunum til hlýðni í markríldeilunni.

Þá má nefna enn frekar að Grænlendingar standa í stríði við ESB vegna banns á verslun með selskinn innan ESB og hafa kært bannið til WTO, Alþjóðaviðskiftastofnunarinnar. Íslendingar hafa stutt kæru Grænlendinga formlega á alþjóðavettvangi, reyndar við lítinn fögnuð ESB.

 

 

Aðildarviðræðum við ESB sjálfhætt

Góðu heilli var tekin ákvörðun fyrir síðustu áramót að halda óbreyttum hlut Íslendinga í makríl og beygja sig ekki fyrir ofríki ESB.


Danir eru milli steins og sleggju í makríldeilunni heimafyrir og því nokkuð ljóst að ekki verður opnað á raunverulega samninga við Íslendinga í sjávarútvegsmálum undir ESB- formennsku Dana eins og lofað hefur verið.

 

http://www.fiskerforum.dk/erhvervsnyt/erhvervsnyhed.asp?nyId=3230

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband