Samtök atvinnurekenda ráða ekki við samningshlutverk sitt

Því miður virðist ljóst að forysta Samtaka atvinnurekenda ræður ekki við hlutverk sitt að  halda utan um ráðandi öfl í Samtökunum.

Þrátt fyrir yfirstandandi kjarasamninga og sameiginlegar yfirlýsingar um að standa vörð um kjör og kveða niður verðbólgu dynja hækkanir á vörum, þjónustu, fyrirtækja og opinberra aðila eins og enginn sé morgundagurinn.

Flestir telja sig gætað hækkað verð á þjónstu og vörum  nú um árarmótin til þess að vega upp verðbólgu síðustu mánaða og hækkunum sem vænta megi  á nýju ári. 

Er það nema vona að hinn reyndi verkalýðsforingi Vilhjálmur Birgisson segi að nánast tilgangslítið sé að reyna að semja  við þessa óábyrgu forystu atvinnurekenda, forystu sem  virðist ekki hafa nein tök á baklandi sínu.

Þar leikur lausum hala sjálftökulið sem telur sig ekki þurfa að standa við neina samninga og hleypur öllum væntingum sínum jafnóðum út í verðlagið og með tilbúna arðsemiskröfu eigenda sinna að vopni.

   Nú þurfa  Samtök atvinnurekenda og forysta þeirra að taka rækilega til í sínum ranni  til þess að þau geti sem samtök verið raunverulegur samningsaðili um kaup og kjör og sem geti staðið við gerða samninga

 

 Leggur til 0% hækkun launa í eitt ár 

 

Vil­hjálm­ur Birg­is­son, formaður Starfs­greina­sam­bands­ins, legg­ur til að eng­ar launa­hækk­an­ir verði á vinnu­markaði í 12 mánuði gegn því að op­in­ber­ir aðilar falli frá öll­um gjald­skrár­hækk­un­um sín­um sem urðu að veru­leika um síðustu ára­mót og fyr­ir­tæki sem eigi aðild að SA geri slíkt hið sama þegar kem­ur að verðhækk­un­um sem komið hafa til á sama tíma.

Þetta kem­ur fram í viðtali í Spurs­mál­um þar sem Vil­hjálm­ur er gest­ur Stef­áns Ein­ars Stef­áns­son­ar.

Seg­ir Vil­hjálm­ur að lang­stærsta viðfangs­efni nú­ver­andi kjaraviðræðna sé að finna lend­ingu sem trygg­ir verðstöðug­leika og lægri stýri­vexti. Hins veg­ar sé á krist­al­tæru að launa­fólki á al­menn­um vinnu­markaði muni ekki sjá eitt um að axla byrðarn­ar þegar kem­ur að því verk­efni.

Viðtalið við Vil­hjálm má sjá og heyra í heild sinni hér:


mbl.is Leggur til 0% hækkun launa í eitt ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband