Kallað eftir vopnahléi á GASA .

"Yfir­menn fjölda stofnana SÞ for­dæma stöðuna og kalla eftir vopna­hléi" 

Bandaríkin og gömlu nýlendu og hervöldin í Evrópu ráða í raun framvindunni á ógnaröldinni á Gasa og Palestínu.

Hún er nánast sorgleg hringferð Bidens, utanríkisráðherra Bandaríkjanna milli ríkja við botni Miðjarðarhafs og "reyna" að ná fram vopnahléi en lofa um leið Ísraelsmönnum ómældu magni af vopnum og nýtísku gereyðingartækjum. Þessar vopnasendingar næra hatrið og voðaverk stríðsaðilanna
 Með einu pennastriki getur Biden stöðvað eða skilyrt vopnasendingar til Ísrael og þá myndu bardagar stöðvast og grundvöllur yrði fyrir friðarviðræðum og mannúð
 
Leyfi mér að birta frétta af Vísi.is í dag
  Hólmfríður Gísladóttir skrifar 6. nóvember 2023 06:43
Börn reyna að ýta vatni frá heimili sínu í Maghazi-flóttamannabúðunum eftir árásir Ísraelshers í gær. Börn reyna að ýta vatni frá heimili sínu í Maghazi-flóttamannabúðunum eftir árásir Ísraelshers í gær.AP/HATEM MOUSSA

Ísraelsher segist hafa umkringt Gasaborg og náð að skipta Gasa í tvennt; Norður-Gasa og Suður-Gasa. Talsmaður hersins segir um að ræða mikilvægan áfanga í stríðinu gegn Hamas-samtökunum.

Fjölmiðlar í Ísrael segja til standa að sókn hermanna inn í borgina hefjist innan 48 klukkustunda. Miklar sprengingar hafa heyrst og sést í norðurhluta Gasa í nótt.

Yfirmenn fjölda stofnana Sameinuðu þjóðanna og annarra hjálparsamtaka hafa undirritað yfirlýsingu þar sem kallað er eftir tafarlausu vopnahléi. Ástandið á Gasa sé „hörmulegt“ og „óásættanlegt“. 

Meðal þeirra sem skrifa undir yfirlýsinguna eru stjórnendur Samhæfingarskrifstofu aðgerða SÞ í mannúðarmálum, Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, Save the Children og Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna.

Í henni segir meðal annars að umheimurinn hafi fylgst með þróun mála af hryllingi. Um 1.400 hafi látist í árásum Hamas á Ísrael 7. október og yfir 200 verið rænt en enn meira mannfall meðal almennra borgara á Gasa sé hneyksli og einnig það að svipta milljónir aðgengi að vatni, mat, lyfjum, rafmagni og eldsneyti.

Íbúar leita að fólki í húsarústum í Maghazi-flóttamannabúðunum.AP/HATEM MOUSSA

Samkvæmt yfirvöldum á Gasa, sem eru undir stjórn Hamas, hafi nærri 9.500 verið drepnir í árásum Ísraelshers, þar af 3.900 börn og 2.400 konur. Yfir 23.000 hafi slasast alvarlega.

Það sé algjörlega óásættanlegt að heilt samfélag sæti umsátri og árásum og sé neitað um aðgengi að lífsnauðsynjum. Fólk sæti árásum heima hjá sér, í skýlum, bænahúsum og á spítölum.

Þá hafi fjöldi starfsmanna hjálparsamtaka verið drepnir.

Abdullah II, konungur Jórdaníu, greindi frá því í nótt að þarlend yfirvöld hefðu látið fljúga flugvél yfir Gasa, sem lét neyðargögn falla til jarðar yfir jórdanska spítalanum á svæðinu. Að sögn Axios var flugið og aðstoðin framkvæmd með samþykki Ísraelshers.

Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er nú staddur í Tyrklandi þar sem hann mun funda með ráðamönnum en þó ekki forsetanum Recep Tayyip Erdogan, sem sjálfur er á ferðalagi. Blinken hefur ferið á faraldsfæti á svæðinu síðustu daga til að freista þess að koma í veg fyrir að átökin breiðist út.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband