Aðgát skal höfð

Sammála Þórólfi sóttvarnarlækni  um að þessi nýja bylgja veirusmita tengd ákveðnum hverfum og stofnunum í Reykjavík kallar á snöggar og sértækar aðgerðir.

Við búðarborðið 

  Ég bý í háskólahverfinu og stend mig oft að óvarkárni.  Litlu háskólabúðirnar í kring eru þröngar og því miklvægt sóttvarnaraðgerðir séu góðar og samræmdar hjá starfsfólki. Sumt er með grímu, sumt er með hanska, stundum fara berir puttarnir af símanum á vörurnar og kassann  til skiftis. Ég fer í Vesturbæjarlaugina og reyni að velja stund utan álagstíma en hugsa það sama og stend mig að óvarkárni

Þetta á reyndar við fleiri búðir og afgreiðslukassa  og líka í stórum búðum.

Mín tilfinning er sú að verslunarstjórar þurfi stöðugt að fara yfir smitvarnir í búðum, samræmdar og skýrar reglur hjá starfsfólki. En það getur alveg eins og ég sjálfur gleymt sér í óvarkárni.

Berhent á Hlaupahjólum

  Mikill fjöldi hlaupahjóla er stillt upp mjög þétt víða um bæinn. Þetta á ekki hvað síst við hér í Háskólahverfinu. 

Varla verður þverfótað á gangstéttum fyrir fólki á þessum hjólum.

   Svo góður fararskjóti sem þau eru. þá geta þau líka verið mjög virkir smitberar um allan bæ.  

Berhent á hjólinu er því skilað til næsta leigjenda sem líka þeytist um berhentur og svo koll af kolli.   Mér finnst kæmi til greina að banna þessi hjól í ákveðnum hverfum og við stofnanir ar sem veiran grasserar.

"Við erum jú öll almannavarnir"

 

 


mbl.is 19 ný innanlandssmit: mesti fjöldi frá 9. apríl
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband