Landbúnaður og matvælaöryggi Íslands

Á málþingi um þjóðarör­yggi og full­veldi sem fram fór í Hörpu um helg­ina fjallaði Ólaf­ur Ragn­ar um stöðu bænda og að mat­væl­in væru einn mik­il­væg­asti þátt­ur­inn í ör­yggi þjóða,

Landbúnaður og matvælaframleiðsla Íslends hefur átt undir högg að sækja innan íslenskrar stórnsýslu síðustu misserin. 

Ólafur Ragnar Grímsson fyrrverandi forseti  lagði sérstaka áherslu á matvæla og fæðuöryggi þjóðarinnar á fullveldisráðstefnu í Hörpu.  Þau öfl sem vilja gera  fullveldið að verslunarvöru og tala um í lítilsvirðingartón að hér sé um "teygjanlegt hugtak" að ræða  hafa einmitt sérstaklega veist að þessum atvinnugreinum þjóðarinnar.

Hefur græðgi og gróðasjónarmið einstakra fyrirtækja og einstaklinga  beitt sér hart gegn þessum meiginhagsmunum þjóðarinnar.

Ólafur Ragnar Grímsson  

Fram hefur komið hugmynd um að Ólafi Ragnari Grímssyni verði boðið að gerast sérstakur verndari landbúnðar og matvælaframleiðslu Íslands. Ljóst er að það þarf að bregðast hart við til verndar og sóknar fyrir innlenda matvælaframleiðslu. Það hefur sýnt sig á undanförnum árum að Ólafur Ragnar Grímsson er öflugur talsmaður þegar hann beitir sér.  Hugmyndin um að Ólafur Ragnar  gerist sérstakur verndari þessara greina  er góð og á að skoða nánar   


mbl.is Ólafur hvattur til að gerast verndari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Framsókn hafnar Orkupakka ESB

 Línur skýrast í stjórnun orkumála og kröfum ESB. 

Miðstjórnarfundur Framsóknarflokksins samþykkti svohljóðandi ályktun: „Framsóknarflokkurinn hafnar innleiðingu þriðja orkupakkans. Orkuauðlindin er ein af mikilvægustu forsendum velmegunar í landinu.

Framsóknarflokkurinn áréttar mikilvægi þess að allar ákvarðanir í orkumálum verði í höndum Íslendinga og minnir á að stjórnarskrá Íslands leyfir ekki framsal ríkisvalds til erlendra stofnana. Aðstæður Íslands í orkumálum eru gjörólíkar þeim sem liggja til grundvallar orkulöggjöf ESB og því er óskynsamlegt að innleiða það regluverk hér. Auk þess hefur Ísland enga tengingu við orkumarkað ESB og Framsóknarflokkurinn hefur ályktað að slík tenging þjóni ekki hagsmunum landsmanna. Því ber að að hafna innleiðingu þriðja orkupakkans og semja við ESB um að Ísland verði undanþegið orkulöggjöf ESB"

Sjálfstæðisflokkurinn enn klofinn, Miðflokkurinn og Flokkur fólksins á móti

 Mikil andstaða er gagnvart innleiðingu Orkupakka ESB innan Sjálfstæðisflokksins og Miðflokkurinn er algjörlega andvígur. Sama er að segja um Flokk fólksins.

Vafalaust sjá auðmenn og ýmis fyrirtæki í bísness mikla gróðavon að fá að komast inn í orkusölu og orkuviðskipti til Evrópu. Og einhverjir eru tilbúnir að ganga erinda þeirra. Það er ekki nýtt.

Vg hlýtur samkvæmt grunnstefnu sinni að leggjast algjörlega gegn samþykkt og innleiðingu Orkupakkans

ESB- flokkarnir Samfylking og Viðreisn

Eftir standa ESB flokkarnir Viðreisn og Samfylking sem falla ávalt flöt fyrir óskum og kröfum ESB hverju nafni sem þær nefnast. En verða vonandi þar ein á báti


Bankarán !

Þjónustugjöld bankanna hækka og ný gjöld búin til

Þjónustugjöld íslensku bankanna hafa hækkað töluvert á undanförnum árum, samkvæmt úttekt verðlagseftirlitsins á verðskrám bankanna. Þá eru hækkanirnar langt umfram vísitölu neysluverðs, að því er fram kemur í tilkynningu frá ASÍ.

"Ég kosta þúsund kall á mínútu"

Viðskiptavinir standa gjörsamlega varnarlausir gagnvart þessum sjálftökum bankanna sem engin bönd virðast ná um.

Spurning hvort verði ekki að standi skilti framan á einstökum starfsmönnum bankanna : "Ég kosta 1000 kall á mínútu".

Skylt er að verðmerkja vörur í búðum en þessar rukkanir bankanna koma allar eftir á og eru ósýnilegar eins og um kalda hönd sé að ræða. Hefði ekki þessi aukna rafræna tækni bankanna  átt að lækka öll þjónustugjöld?

Fólk er orðið vant að borga allt sem bankar setja upp og reynsla margra er sú að, ef þú spyrð gæti það kostað enn meir.

Ég stend mig sjálfan að því að ganga óöruggur með veggjum ef ég fer inn í banka og held fast um krítarkortið af ótta við að vera rændur í hverju skrefi sem ég tek.  Ég vissi þó ekki að svo væri raunin.

 Sjálftökuófreskjan

Mér finnst verðlagning á þessari þjónustu og fundvísi á að stofna til nýrra gjalda ganga út yfir allan þjófabálk.

Vísað er til rafrænna  möguleika osfrv. Gott og vel en á hverjum bitnar þá þessi ráðstöfun harðast? Jú  m.a. á eldra fólki og þeim sem taka alvarlega varnaðarorð um að óprúttnir geti komist yfir leyninúmer o.sfrv. Svo eru bara ekki allir jafnklárir að lesa hinar rafrænu leiðbeiningar. Greiðslubeiðnir eru hættar að berast í pósti og séu þær sendar, berast þær ekki fyrr en löngu eftir gjalddaga.

Og svo tala skattayfirvöld um að banna notkun peningaseðla í viðskiptum til að tryggja bönkunum enn betur þessa tekjulind.

Maður hlýtur að auglýsa eftir einhverjum með heila brú í kollinum sem getur hamið þessa sjálftökuófreskju

Útibúum fækkað en þjónustugjöld hækka

"Ef vísitala neysluverðs er skoðuð má sjá að þjónustugjöld banka og kostnaður við greiðslukort hefur hækkað langt um fram vísitölu neysluverðs. Samkvæmt könnun verðlagseftirlitsins hefur bankakostnaður hækkað um 11% og kostnaður við greiðslukort hækkað um 19% á síðustu þremur árum, þ.e. frá október 2015 til október 2018. Á sama tíma hefur vísitala neysluverðs hækkað um 7%." mbl.

Það er eitthvað meiri háttar að.

Græðgin í arðgreiðslur eða bónusa til stjórnenda  má ekki ganga útyfir allan þjófabálk.

Það er eitthvað að í sjálftökum og þjónustuskyldum bankanna.  Það þýðir lítið að höfða til samkeppnni því þetta er nánast eins hjá öllum og svo eru einstaklingar og fyrirtæki býsna bundin vistarböndum við þann banka sem þeir hófi samskipti við

 


mbl.is Þjónustugjöld hækka langt umfram verðlag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig getur svona gerst?

Töldu sykursjúkan dreng sprautufíkil þegar hann þurfti að sprauta sig með insúlíni á skólaballi. Drengurinn var handtekinn, settur í fangaklefa á mjög ruddalegan og niðurlægjandi hátt

Hvort sem unglingurinn var sykursjúkur eða ekki er svona framkoma óréttlætanleg. En þeim mun alvarlegri í tilfelli sykursýkinnar.

Ég efa ekki sannleiksgildi frásagnarinnar, en sé þetta svo eins og lýst er, þá er þessi framkoma samfallandi glæpur af verstu gerð.

Þarna er eitthvað meiriháttar að.

Hvernig bætur og meðferð hefur dregngurinn fengið til að reyna að jafna sig og ná sér eftir slíka hamfarameðferð?

 

Mál fyrir Umboðsmann barna að fara í


mbl.is Töldu sykursjúkan dreng sprautufíkil
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband