Mánudagur, 18. júlí 2022
Ríkið taki - Mílu - í öryggisskini
Alþjóðlegi "franski" fjárfestingasjóðurinn telur sig ekki græða nóg á kaupum sínum á grunnneti Símans, Mílu.
Sjóðurinn vill fá nýjan og hagstæðari samning og getað braskað meir með öryggisnet þjóðarinnar.
Stríðið í Úkraínu viðskiptaþvingar og hótanir um matvæla- og orkustríð ætti að kenna okkur að hugsa fyrst um eigin öryggi.
Viljum við lenda í svipuðu og Þjóðverjar með skyndilokun gas og olíuleiðslna frá Rússlandi
Stjórnvöld vilja setja upp mannaða herstöð en fórna grunnneti fjarskipta
Íslensk stjórnvöld ræða í alvöru um að setja að nýju upp á Íslandi herstöð með setuliði í "öryggiskini", án samþykkis þjóðarinnar.
Hervæðing kallar á ófrið og skotmörk.
Hins vegar virðast stjórnvöld áfram reiðubúin að láta grunnnet fjarskipta landsins í hendur erlendra brasksjóða - Öryggiskerfi sem tengir samskipti okkar saman sem þjóð.
EES heimtar að við einkavæðum og seljum Farice fjarskiptastrengina við útlönd
Þjóðnýtum Mílu -grunnet fjarskipta - í öryggisskini
Er ekki kominn tími á að íslensk stjórnvöld rísi upp en liggi ekki marflöt fyrir erlendum auðhringum og "hermöngurum" sem sölsa nú undir sig hverja grunnstoð íslensk samfélags eftir aðra?.
Hvenær verður Samherji seldur í heilulagi með fiskveiðiheimildum og öllu eða í bútum til eða erlendra fjárfestingasjóða og "Tortólu" landa?
Ardian sættir sig ekki við kaupsamninginn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 19.7.2022 kl. 18:34 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.