Verðbólgan og Landsvirkjun

Skamm­tíma­verð Lands­virkj­un­ar á raf­orku á heild­sölu­markaði hef­ur verið stór hækkað. 8 til 15% (Verð hjá Landsvirkjun hækkar  Mbl. 8.11. 21)

 Hækkuninni er ætlað að "stuðla að jafn­vægi á milli fram­boðs og eft­ir­spurn­ar eft­ir raf­magni"  segir í yfirlýsingu Landsvirkjunar: 

. "sam­spil markaðslög­mál­anna sem út­skýri þessa hækk­un".

Eru áform um sölu Landsvirkjunar komin á fullt?

Í rauninni skilja fáir þessa röksemdafærslu forstjórans fyrir  hækkun Landsvirkjunar.

Að vísa til einhæfra markaðslögmála fyrir órökstudri stórhækkun almannaþjónustu vísar leiðina til einkvæðingar og sölu fyrirtækisins.

  Landsvirkjun er 100% í eigu þjóðarinnar og heyrir beint undir fjármálaráðherra sem skipar henni stjórn.

Landsvirkjun er eitt mikilvægasta þjónustu fyrirtæki landsmanna. 

 Rafmagnsverð til notenda ræður  miklu um samkeppnishæfni búsetu og atvinnurekstrar á Íslandi.

Hækkun á raforkuverði þrýstir upp verðbólgu og skerðir kjör almennings 

Tekjur Landsvirkjunar hækka um  tugi milljarða 

Fyrr á árinu var greint frá:  "Hækkun á álverði skilar Landsvirkjun milljörðum króna " (14.09.2021 - 18:26 Efnahagsmál · Innlent · Orkumál)

 "Forstjóri Landsvirkjunar segir að mikil hækkun á álverði skili Landsvirkjun milljörðum króna í auknar tekjur. 40 % hækkun á skömmum tíma ...
 
Ekki liggur fyrir hversu mikil tekjuaukningin verður hjá Landsvirkjun. . „Við höfum ekki lagt mat á það en þetta er sambland af magni og verði en það er verið að tala þar um milljarða tekjuaukningu,“ segir hann.

Landsvirkjun greiðir sex milljarða króna arð til ríkisins

Landsvirkjun mun greiða 6,34 milljarða króna arðgreiðslu til íslenska ríkisins fyrir árið 2020.

Eigendur ( les fjármálaráðherra) samþykktu tillögu stjórnar þess efnis á aðalfundi Landsvirkjunar sem haldinn var í vor. Arðurinn er ákvarðaður í Bandaríkjadölum og nemur hann 50 milljónum dala í ár.

Landsvirkjun ætti frekar að lækka verð til almenningsveitna

Nú þegar hvatt er til þess að við öll leggjumst á eitt að halda niðri verðbólgu, styrkja samkeppnisstöðu atvinnulífs og tryggja kjör almennings.

Þá hlýtur maður að spyrja hvers vegna er Landsvirkjun leyft að stór hækka grunn verð raforku sem fyrst og fremst tekur til almenningsveitna og það með samþykki ráðherra.

 Góð staða Landsvirkjunar og ákall samfélagsins er að  lækka verð á raforku til almenningsveitna og standa með fólkinu í landinu.


mbl.is Verð hjá Landsvirkjun hækkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband