Mánudagur, 31. ágúst 2020
Tvöföld skimun á landamærum bráðnauðsynleg
Veiru frítt Ísland er stærsta baráttumál þjóðarinnar. Við erum eyþjóð og getum það. En til þess þarf að hafa trú og vilja og grípa til nauðsynlegar aðgerða.
Kári stendur sig
"Ég held að það skipti svolitlu máli að átta sig á því sem vinnst, ekki bara því sem tapast með þessu kerfi. Það sem vinnst er m.a. það að við getum haldið uppi skólastarfi á eðlilegan hátt, það er ekkert mikilvægara fyrir samfélagið en að hlúa vel að börnum og ungmennum í skólum. Kerfið býður upp á þann möguleika að stunda menningarstarfsemi á eðlilegan hátt. Kerfið býður upp á þann möguleika að sóttvarnir séu ekki að vega að annarri atvinnustarfsemi í landinu.
Hvers vegna þurfa fjölmiðlar að segja ósatt um fjölda smita sem uppgötvast við seinni skimun?
"Þá segir Kári að ef litið er til framtíðar þá séu það langtímahagsmunir ferðaþjónustunnar að við getum barið okkur á brjóst og sagt að við séum þjóð sem hlúir vel að sínu fólki, hingað geti fólk komið vegna þess að hér séum við örugg".
Gáleysistal lögspekinga
Einstaka lögspekingar hafa minnst á stjórnarskrár brot og skaðabótakröfur í þessari sjálfsvörn þjóðarinnar gegn veirunni.
Hvað mega þeir þá segja sem smitast, þau sem geta ekki haldið uppi eðlilegri starfsemi þegar við eigum möguleika að halda þessum vágesti úti.
Hafa þau þá ekki skaðabótarétt á ríkið fyrir að það standa sig ekki í sóttvörnum og beiti ekki öllum tiltækum ráðum til að verja þegnana og samfélagið
Er það ekki alvarlegt mál og stjórnarskrárbrot þegar tryggingarfélög lýsa því nú yfir að þau treysti sér nú ekki til að afgreiða líftryggingar fólks með eðlilegum hætti meðan veirufárið gengur yfir.
Verða kannski farþegar að kaupa tryggingar vegna skaðabótakrafna ef þeir bera smit inn í landið.
Vonandi stöðvast þessi umræða lögspekinganna sem nú tala um stjórnarskrárbrot og skaðabótakröfur áður en til þess kemur.
"Ræfildómur að halda ekki landinu hreinu" sagði próf. Margrét Guðnadóttir ein öflugasti veirufræðingur landsins á síðari timum þegar hún vilda verja íslenskt búfé og þjóðina fyrir hættulegum veirusjúkdómum.
Ekkert smit greindist innan lands í gær og er það fagnaðarefni. Vonandi verða fleiri slikir dagar á næstunni. En þá má ekki slaka á né láta undan þrýstingi tímabundinna einkahagsmuna og gefa eftir í landamæra vörnum
Þær mega ekki klikka.
Veiru frítt Ísland er markmiðið
Þrír smitaðir: Seinni skimun bráðnauðsynleg | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 1.9.2020 kl. 19:17 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.