Mánudagur, 26. nóvember 2018
Landbúnaður og matvælaöryggi Íslands
Á málþingi um þjóðaröryggi og fullveldi sem fram fór í Hörpu um helgina fjallaði Ólafur Ragnar um stöðu bænda og að matvælin væru einn mikilvægasti þátturinn í öryggi þjóða,
Landbúnaður og matvælaframleiðsla Íslends hefur átt undir högg að sækja innan íslenskrar stórnsýslu síðustu misserin.
Ólafur Ragnar Grímsson fyrrverandi forseti lagði sérstaka áherslu á matvæla og fæðuöryggi þjóðarinnar á fullveldisráðstefnu í Hörpu. Þau öfl sem vilja gera fullveldið að verslunarvöru og tala um í lítilsvirðingartón að hér sé um "teygjanlegt hugtak" að ræða hafa einmitt sérstaklega veist að þessum atvinnugreinum þjóðarinnar.
Hefur græðgi og gróðasjónarmið einstakra fyrirtækja og einstaklinga beitt sér hart gegn þessum meiginhagsmunum þjóðarinnar.
Ólafur Ragnar Grímsson
Fram hefur komið hugmynd um að Ólafi Ragnari Grímssyni verði boðið að gerast sérstakur verndari landbúnðar og matvælaframleiðslu Íslands. Ljóst er að það þarf að bregðast hart við til verndar og sóknar fyrir innlenda matvælaframleiðslu. Það hefur sýnt sig á undanförnum árum að Ólafur Ragnar Grímsson er öflugur talsmaður þegar hann beitir sér. Hugmyndin um að Ólafur Ragnar gerist sérstakur verndari þessara greina er góð og á að skoða nánar
Ólafur hvattur til að gerast verndari | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:52 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.