Föstudagur, 29. júní 2018
Katrín taki yfir samningana við ljósmæður
Löngu er ljóst að fjármálaráðherra ræður ekki við samninga og samskiptin við ljósmæður. Þar virðist komin upp þrákelknisleg störukeppni af hálfu samninganefndar ríkisins sem algjör raun er að horfa á. (Engin lausn í sjónmáli )
Fjármálaráðherra, Bjarni Benediktsson hefur borið samningsábyrgðina fyrir hönd ríkisins gagnvart ljósmæðrum án nokkurs sýnilegs árangurs og neikvæðan ef eitthvað. Uppsagnir ljóðsmæðra halda áfram. Það er komið neyðarástand sen verður að takast á við af alvöru.
Ábyrgðin er nú forsætisráðherrans
Forsætisráðherra, Katrín Jakopsdóttir verður að sýna þann myndugleik og ábyrgð að taka samskiptin við ljósmæður af fjármálaráðherranum, en til þess hefur hún fulla heimild til innan ríkisstjórnar.
Hún getur falið ábyrgðina öðrum ráðherra eða farið með hana sjálf.
Neyðarástand sem verður að leysa úr
Ljósmæður hafa verið kjarasamningslausar í fleiri misseri og nú blasir neyðarástand við. Barnshafandi konur búa við aukna óvissu og öryggisleysi.
Landsmenn krefjast þess að samningamálin víð ljósmæður verði tekin úr þessari þrákelknislegu störukeppni stjórnvalda og sett í jákvæðan og trúverðugan farveg sem skili árangri.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:08 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.