Einkavæðing áfram – ekkert stopp!

Sjálfstæðisflokkurinn er trúr fortíðinni og  heldur fast við einkavæðinguna í heilbrigðis- og menntamálum.  Landsfundurinn áréttar  þessa stefnu flokksins.

Forsætisráðherra  Sjálfstæðisflokksins  fagnaði því sérstakleg við myndun  ríkisstjórnarinnar  með Samfylkingunni að þá væri hægt að ganga mun lengra og hraðar í einkavæðingu heilbrigðiskerfisins en nokkurn tíma væri hægt með Framsókn. Var hún þeim  þó býsna leiðitöm t.d. í helmingaskiptunum við einkavæðingu og sölu bankanna.Í frétt frá landsfundi Sjálfstæðismanna  segir:

„Aukinn einkarekstur í heilbrigðis- og menntamálum
Í ályktuninni, sem samþykkt var með miklum meirihluta atkvæða á fundinum í dag, segir að brjótast þurfi úr viðjum vanans og hugsa heilbrigðismál upp á nýtt til að skapa meiri verðmæti fyrir minna fé. Lagt er til að verkefnum og þjónustu verði útvistað og þannig verði hægt að byggja upp fyrirtæki með sérstökum tækifærum. Ekki má skilja þennan lið ályktunarinnar öðruvísi en svo að þarna sé flokkurinn að leggja aukna áherslu á einkarekstur í heilbrigðis- og menntamálum.“
 (Landsfundur  Sjálfstæðisflokksins ,mbl. is. 28. mars. 2009)

 Sjálfstæðisflokkurinn bregst ekki sinni blindu trú á einkvæðinguna og áfram eru  það  heilbrigðis- og menntamál. 

 -Eins og þjóðin hafi ekki fengið upp í kok af einkavæðingu Sjálfstæðisflokksins á undanförnum árum sem er ein meginorsök efnahagshrunsins sem þjóðin verður að axla ábyrgð á.

Hefði ekki verið rétt hjá Geir Haarde að biðja þjóðina afsökunar á einkvæðingarbrjálæðinu öllu í 18 ára stjórnartíð Sjálfstæðisflokksins?. 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband