Mánudagur, 6. nóvember 2023
Kallað eftir vopnahléi á GASA .
"Yfirmenn fjölda stofnana SÞ fordæma stöðuna og kalla eftir vopnahléi"
Bandaríkin og gömlu nýlendu og hervöldin í Evrópu ráða í raun framvindunni á ógnaröldinni á Gasa og Palestínu.
Börn reyna að ýta vatni frá heimili sínu í Maghazi-flóttamannabúðunum eftir árásir Ísraelshers í gær.AP/HATEM MOUSSAÍsraelsher segist hafa umkringt Gasaborg og náð að skipta Gasa í tvennt; Norður-Gasa og Suður-Gasa. Talsmaður hersins segir um að ræða mikilvægan áfanga í stríðinu gegn Hamas-samtökunum.
Fjölmiðlar í Ísrael segja til standa að sókn hermanna inn í borgina hefjist innan 48 klukkustunda. Miklar sprengingar hafa heyrst og sést í norðurhluta Gasa í nótt.
Yfirmenn fjölda stofnana Sameinuðu þjóðanna og annarra hjálparsamtaka hafa undirritað yfirlýsingu þar sem kallað er eftir tafarlausu vopnahléi. Ástandið á Gasa sé hörmulegt og óásættanlegt.
Meðal þeirra sem skrifa undir yfirlýsinguna eru stjórnendur Samhæfingarskrifstofu aðgerða SÞ í mannúðarmálum, Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, Save the Children og Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna.
Í henni segir meðal annars að umheimurinn hafi fylgst með þróun mála af hryllingi. Um 1.400 hafi látist í árásum Hamas á Ísrael 7. október og yfir 200 verið rænt en enn meira mannfall meðal almennra borgara á Gasa sé hneyksli og einnig það að svipta milljónir aðgengi að vatni, mat, lyfjum, rafmagni og eldsneyti.
Íbúar leita að fólki í húsarústum í Maghazi-flóttamannabúðunum.AP/HATEM MOUSSASamkvæmt yfirvöldum á Gasa, sem eru undir stjórn Hamas, hafi nærri 9.500 verið drepnir í árásum Ísraelshers, þar af 3.900 börn og 2.400 konur. Yfir 23.000 hafi slasast alvarlega.
Það sé algjörlega óásættanlegt að heilt samfélag sæti umsátri og árásum og sé neitað um aðgengi að lífsnauðsynjum. Fólk sæti árásum heima hjá sér, í skýlum, bænahúsum og á spítölum.
Þá hafi fjöldi starfsmanna hjálparsamtaka verið drepnir.
Abdullah II, konungur Jórdaníu, greindi frá því í nótt að þarlend yfirvöld hefðu látið fljúga flugvél yfir Gasa, sem lét neyðargögn falla til jarðar yfir jórdanska spítalanum á svæðinu. Að sögn Axios var flugið og aðstoðin framkvæmd með samþykki Ísraelshers.
Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er nú staddur í Tyrklandi þar sem hann mun funda með ráðamönnum en þó ekki forsetanum Recep Tayyip Erdogan, sem sjálfur er á ferðalagi. Blinken hefur ferið á faraldsfæti á svæðinu síðustu daga til að freista þess að koma í veg fyrir að átökin breiðist út.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.