Mánudagur, 22. júní 2020
Hvers konar rugl er þetta
Við viljum alls ekki ný veirusmit inn í landið! -
Sóttvarnarlæknir telur jafnvel óþarfa að smitgreina fólk á flugvellinum vegna þess hve fá smit greinast.
Er það ekki einmitt fagnaðarefni að séu fá smit. Eitt smit á dögunum smitaði tvo lögreglumenn og setti aðra 14 í sóttkví. Hver veit hvað meir.
Vanhugsuð yfirlýsing sóttvarnalæknis
Hvernig ætla menn að velja út lönd og fólk á flugvellinum eða á landamærastöðvum sem er búið að fara í gegnum marga flugvelli á leið hingað og enginn veit hvaðan koma.
Þá fyrst verður um alvarlega mismunun að ræða.
Nánast engar smitrannsóknir eru í gangi meðal landsmanna og enginn veit hvernig staðan er. Mörg önnur lönd eru með ítarlegar fjöldasýnatökur meðal almennings til að fylgjast með stöðunni og grípa smit.
Hættuleg staða í kringum okkur
"Smittetrykket fortsetter å øke i Tyskland
Smittetallet, eller reproduksjonstallet, fortsetter å øke i Tyskland. Fra lørdag til søndag økte tallet fra 1,79 til 2,88"
Liðlega 30 nýsmit eru í Noregi á dag og fjölgar heldur en fækkar. Sömu sögu er að segja í Danmörku. Það eru ekki bara Rússland og Bandaríkin sem eru smitandi lönd
Það væru alvarleg mistök ef farið væri að slá af eftirliti og kröfum gegn veirusmiti á íslenskum landamærum.
Skoða að hætta skimun frá vissum löndum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:08 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.