Sunnudagur, 14. júní 2020
Blekkingin - Veirufrítt Ísland
Hin stóra auglýsing " Veirufrítt Ísland er hrunin. Stjórnvöld sem hafa barið sér á brjóst og sett milljarða í kynningarátak um "veirufrítt land" hefðu sjálfssagt mátt fara hægar í sakirnar.
Sá mikli fórnarkostnaður og samfélagsátak sem þjóðin tók á sig í vetur og vor getur runnið út í sandinn fyrir hégómaskap og værukærni stjórnvalda og almannavarna á landamærum landsins.
Gamla fólkið og þau sem teljast til áhættuhópa búa sig undir að fara aftur inni í skelina sína.
Fjölskyldufólk sem vonaðist til að geta ferðast áhyggjulítið um landið, tekið flug eða gist á hótelum hugsar sig tvisvar um.
Hver hlýtur að spyrja sjálfan sig: "er sessunautur minn í flugvélinni eða rútunni eða á hótelinu smitaður af Kovid". Fáir þora að segja þetta upphátt en mig grunar að fjöldinn hugsi einmitt það innra með sér.
Það væri nær að herða frekar á reglum og kröfum til þeirra sem koma til landsins og fylgja þeim eftir í stað þess að stæra sig af hinu gagnstæða. Veiru prufanir hafa bara ákveðið takmarkað öryggi og gilda aðeins þá mínútuna sem sýnið er tekið.
Atburðirnir með smituðu Rúmenana breytir engu þar um heldur sýna fram á alvöru málsins og hve berskjaldaðir landsmenn eru.
Það er alveg ljóst að herða þarf á landamæraeftirliti, takmarka komur fólks og tryggja betur eftirfylgni og eftirliti með þeim sem koma til landsins. Bæta þarf á ný flæði upplýsinga um smit og hvað í gangi er á hverju svæði landsins og höfuðborgarvæðinu þannig að landsmenn geti tekið mið af því í skipulagningu ferðalaga og daglegs lífs
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:04 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.