Mánudagur, 18. maí 2020
Kvíði og reiði vegna bráðræðis stjórnvalda
Þessi ákvörðun um að opna landið er mjög umdeild. Það sýnist sitt hverjum. Margir af mínum kollegum eru mjög hugsi um þetta og jafnvel reiðir að þetta skuli vera gert, sagði Már í viðtali á Morgunvaktinni í morgun." Segir marga reiða yfir því að landið verði opnað
Valda kvíða og öryggisleysi
Það er mjög alvarlegt að fá þá tilfinningu að sóttvarnir og heilbrigðismál þjóðarinnar séu settar póitískt til hliðar í yfirlýsingakeppni milli einstakra ráðherra.
Mikilvægt að halda trausti þjóðarinnar
Vissulega er staðan atvinnu- og félagslega alvarleg en kvíði og vantraust á aðgerðir stjórnvalda í veirumálinu eru miklu alvarlegri fyrir þjóðarsálina.
Þessa ákvörðun stjórnvalda og forgangsröðun þarf að endurskoða.
Útrýmum veirunni fyrst á Íslandi og náum eðlilegum samskiptum innanlands.
Bíðum svo átekta
Ljúkum fyrst kjarasamningum við hjúkrunarstéttirnar
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:49 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.