Mánudagur, 29. apríl 2019
"Hvað verður um mig "?
Málþing um rétt barna, stöðu þeirra og þarfir við fráfall foreldris fer fram í húsi Íslenskrar erfðagreiningar mánudaginn 29. apríl kl. 15-17.45.
Það er stórt og óafturkræft áfall þegar foreldri barns fellur frá. Á málþinginu verða kynntar rannsóknir um upplifun barna eftir fráfall foreldris og hvernig nýta má þær upplýsingar sem fram komu til að skapa umgjörð fyrir fagfólk og alla sem standa að börnunum. Jafnframt verður greint frá rannsóknum á stöðu barna sem aðstandenda krabbameinssjúklinga. Fjallað verður um eigin rétt barnanna og þarfir fyrir stuðning og leiðsögn, skyldur og ábyrgð hins opinbera, tengsl fjölskyldu, samfélags og sjálfstæða þörf barna fyrir sorgarvinnslu og utanumhald allt til fullorðinsára.
Kynnt verða nýjustu talnagögn frá Hagstofu Íslands um fjölda og aldur barna sem missa foreldri ásamt dánarorsök. Tölurnar gefa til kynna hvert umfangið er og hversu mikilvægt er að skapa lagalega umgjörð til að hlúa að þessum börnum og fjölskyldum þeirra. Jafnframt verður fjallað um ný lagaákvæði og verklagsreglur til að styrkja stöðu og rétt þessara barna.
Dagskrá
Kl. 14:50 Tónlist: Svavar Knútur tónlistarmaður
Kl. 15:00 Setning: Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra
Ávarp: Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands
Erindi: Dr. Sigrún Júlíusdóttir, prófessor í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands:
Íslenskar rannsóknir á stöðu barna sem aðstandendur krabbameinssjúklinga
Erindi: Anton Örn Karlsson, deildarstjóri atvinnu-, lífskjara- og mannfjöldadeildar
Hagstofu Íslands: Börn sem missa foreldri - fjöldi barna og dánarorsakir foreldra
Erindi: Anna Rós Jóhannesdóttir, yfirfélagsráðgjafi Landspítala Íslands: Bætt verklag í
þágu barna og fjölskyldna við andlát foreldris
Erindi: Sr. Vigfús Bjarni Albertsson, sjúkrahúsprestur: Hvað verður um mig?"
Kaffihlé
Erindi: Vilhjálmur Árnason, alþingismaður: Stefnan tekin
Erindi: Birna Dröfn Jónasdóttir, Nýrri dögun - sorgarmiðstöð:
Og svo hrundi heimurinn
Erindi: Heiðrún Jensdóttir formaður Arnarins minningarsjóðs:
Sorgarúrvinnsla - helgardvöl fyrir börn í Vatnaskógi
Samantekt erinda: Dögg Pálsdóttir, lögfræðingur
Ávarp: Salvör Nordal, umboðsmaður barna
Ávarp: Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra
Lokaorð: Jón Bjarnason, fyrrverandi ráðherra
Kl. 17:45 Áætluð dagskrárlok
Fundarstjórar:
- Laufey Erla Jónsdóttir, sérkennslustjóri og Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélags Íslands
Aðstandendur málþingsins:
- Hópur áhugafólks um hag barna við fráfall foreldris, Félags- og barnamálaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Rannsóknarstofnun í barna- og fjölskylduvernd við félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands, Landspítalinn og Krabbameinsfélag Íslands.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:32 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.