Miðvikudagur, 18. júlí 2018
Íslenski fjárhundurinn á Þingvöllum
Það fór vel á að íslenski fjárhundurinn væri í aðalhlutverki á Þingvöllum í dag þegar fagnað var 100 ára fullveldi þjóðarinnar.
Þessi ljúfa, fallega og skynsama skepna hefur lifað með þjóðinni og þolað með henni bæði súrt og sætt í gegnum aldirnar.
Hve margar eru ekki sögurnar af því þegar tryggur hundur fann fjárhópinn fenntan eða smalaði honum saman í hríðarbyl. Hve oft fann ekki þetta trausta og gáfaða dýr leiðina heim í gegnum dimmviðri og vetrarmyrkur. Heima á bænum var íslenski hundurinn hinn ljúfasti leikfélagi barna.
Í dag er einmitt dagur íslenska fjárhundsins. Og Dorrit Moussaief er kannski orðin með íslenskra hjarta en mörg þeirra sem á eftir henni gengu í skrúðgöngunni á Þingvöll. Hún kann sitt fag.
Íslenski hundurinn er miklu skynsamari en svo að hann myndi nokkurntíma greiða atkvæði með beiðni um inngöngu í Evrópusambandið. Og ég er nær viss um að Dorrit myndi aldrei leggja ESB umsókn eða öðru framsali á fullveldi íslensku þjóðarinnar lið eins og því miður ýmsir gerðu vorið 2009.
Auðvitað er margur hugsi yfir, þegar hægt er að mæra fullveldið í öðru orðinu og greiða atkvæði gegn því í hinu. Sú framganga stjórnmálamanna er í raun enn óuppgerð
Framundan er baráttan fyrir því að viðhalda banni við innflutningi á hráu ófrosnu kjöti, verndun lýðheilsu og hollustu íslenskra matvæla. Hvernig mun þingið bregðast við því?
Orkutilskipun Evrópusambandsins bíður Alþingis en hún myndi þýða framsal á fullveldi okkar í stjórnun eigin orkuöflunar og orkudreifingar. Hvert ná fullveldisyfirlýsingar frá deginum í dag þá á Alþingi?
Umsókn um aðild að Evrópusambandinu hefur enn ekki verið dregin formlega til baka.
Við fögnum fullveldinu og erum full þakklætis og virðingar gagnvart þeim sem unnu og báru þá kröfu fram til sigurs 1918.
Við getum svo sem velt því fyrir okkur hversu mörgum af núverandi stjórnmálamönnum við myndum treysta til þess að bera þá fullveldiskröfu fram í dag af fullum heilindum.
Það getur verið mörgum heilladrjúgt í gegnum þann myrkvið að fá leiðsögn íslenska fjárhundsins eins og í vetrarhríðunum forðum
En lengi má manninn reyna.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:57 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.