Þriðjudagur, 21. maí 2013
ESB- umsóknin afturkölluð ?
Framsókn og Sjálfstæðisflokkur munu verða að standa við landsfundarsamþykktir og kosningaloforð sín og afturkalla umsókn Íslands að Evrópusambandinu , loka áróðurskrifstofu ESB, skera á mútustyrkina og treysta sjálfstæði þjóðarinnar í samskiptum við aðrar þjóðir. Ef þeir gera það ekki strax og afdráttarlaust flækjast þeir áfram í netinu og litið verður á það sem hrein svik. Það var Alþingi sem samþykkti að sækja um aðild og það er því þess að samþykkja breytingu þar á og afturkalla umsóknina.
Hamskipti Framsóknar og VG í ESB- málumFramsóknarflokkurinn undir forystu Halldórs Ásgrímssonar var mjög ESB- sinnaður og yfirbauð meira að segja Samfylkinguna í undirlægjuhættinum gangvart ESB og vildi hraðferð þar inn. Grasrótin leit á stefnu Halldórs og forystusveit hans í ESB- málum sem svik við flokkinn.
Vinstrihreyfingin grænt framboð var meðal annars stofnuð um sjálfstæði í utanríkismálum og til að berjast gegn hugsanlegri umsókn og aðild að ESB- Þar skildu leiðir milli VG og Samfylkingar í upphafi. Það var hinsvegar forysta VG sem gekk á bak stefnu flokksins og loforða og sótti um aðild að ESB. Á síðasta landsfundi samþykkti VG að halda því umsóknar- og innlimunarferli áfram.
Framsóknarflokkurinn getur í raun ekki annað en staðið við að afturkalla umsóknina eins og hann hefur lofað. Þá hefur forysta þessara tveggja flokka farið í hring á nokkrum árum.
Fyrrverandi formaður Bændasamtakanna hlýtur að standa í lappirnar
Sjálfstæðisflokkurinn getur ekki annað en staðið við sína landsfundarsamþykkt sem einnig er afdráttarlaus um afturköllun umsóknarinnar. Ég óska fyrrverandi formanni Bændasamtaka Íslands, Haraldi Benediktssyni til hamingju að vera kominn á þing. Það er fengur að Haraldi í þingliðið og gott fyrir landsbyggðina.
Saman og með liði Bændasamtakanna tókum við slaginn í minni ráðherratíð og síðar í utanríkismálanefnd Alþingis gegn framsali á meginhagsmunum Íslands til ESB. En hart var sótt að okkur af Sambandssinnum innan ríkisstjórnarinnar og á Alþingi eins og atburðarásin sannar. Haraldur á sinn pólitíska feril undir því að afturköllun umsóknar að ESB verði afdráttarlaus.
Sjálfstæði þjóðar er ekki verslunarvara
Sjálfstæði þjóðarinnar og fullveldi á ekki að gera að verslunarvöru í samskiptum við ríki eða ríkjasambönd. Verði umsóknin að ESB nú formlega og endanlega afturkölluð hefur verið til nokkurs barist. Ég treysti á að svo verði gert.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 22.5.2013 kl. 07:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 17. maí 2013
Yrði skelegg sem ráðherra
Vigdís Hauksdóttir hefur barist einarðlega gegn umsókn og innlimun Íslands í ESB og flutt um það tillögur að draga beri þá umsókn til baka. Ég vona og treysti því að við það verði staðið og umsóknin afturkölluð tafarlaust og tekin upp samskipti við ESB á jafningja grundvelli eins og við önnur ríki.
Annars ætla ég ekki að blanda mér í skiptingu ráðuneyta og vali á einstaka þingmönnum í ráðherrastóla hjá Framsóknarflokki og Sjálfstæðisflokki. Hinsvegar vaknar sú spurning hvort strax eigi að hefja eineltisumræðuna gagnvart einstökum þingmönnum og ráðherrum eða ráðherraefnum og þá eru einhverjir fengnir til að ríða á vaðið í ómálefnalegu einelti samanber meðf. frétt:
"Áhyggjur verði Vigdís ráðherra
Orðræðan er einum of kunnugleg. Eineltið á að halda áfram. Vigdís Hauksdóttir hefur barist einarðlega gegn umsókn og innlimun Íslands í ESB og flutt um það tillögur að draga beri þá umsókn til baka. Ég vona og treysti því að við það verði staðið og umsóknin afturkölluð tafarlaust og tekin upp samskipti við ESB á jafningja grundvelli eins og við önnur ríki. Sambandssinnar hafa haft horn í síðu Vigdísar vegna þessa ekki síst á Alþingi.
Gæti verið að þessi einarða afstaða Vigdísar ásamt mjög skeleggri baráttu á þingi í fleiri málum einkum þeim sem lúta að velferð og réttindum fólks kalli fram m.a. ómálefnaleg viðbrögð andstæðinganna.
Ég treysti m.a. Vigdísi til að bogna ekki í ESB - málinu. Það geta því miður hin ólíklegustu hné gert þvert á gefnar yfirlýsingar. Ég vona að sagan með þingflokk og forystu VG í ESB málinu endurtaki sig ekki hjá væntanlegum ríkisstjórnarflokkum. Til þess er nú of mikið í húfi.
Vigdís Hauksdóttir hélt uppi baráttu fyrir sjónarmiðum sínum á Alþingi og fékk oft ágjöf og kaldar kveðjur frá forystumönnum ríkisstjórnarflokkanna sem þoldu illa eindrægni hennar og hreinskilni. Þar á bæ vissu menn gjarnan upp á sig sökina og kveinkuðu sér undan.Má segja að Vigdís hafi jafvel oft á tíðum veitt öðrum framsóknarmönnum visst skjól í umræðunni og hún á tvímælalaust sinn veigamikinn þátt í kosningasigri flokksins.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 18.5.2013 kl. 00:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 16. maí 2013
Glæsilegt hjá Eyþóri Inga
Ég á líf, Ég á líf - vegna þín - fór áfram í úrslitin n.k. laugardag. Við öll erum mjög stolt.
Eyþór Ingi hefur afar fallega og mikla rödd og tæra tóna. Baksviðið gaf í senn hlýjan og sterkan bakgrunn fyrir bæði lag og texta.
Það yljaði okkur sem erum á "sauðskinnskónum" að heyra textann fluttan á íslensku. Það gerði allan flutninginn enn þá áhrifameiri, miklu frekar en að hnoða honum yfir á ensku eins og var títt hér fyrir nokkrum árum.
Hlökkum til laugardagsins
Stjórnmál og samfélag | Breytt 17.5.2013 kl. 13:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 16. maí 2013
Háir vextir eru hagstjórnarmistök Seðlabankans
Himinháar hagnaðartölur bankanna
Meðan útlánavextir eru í himinháir eru innlánsvextir eru hér jafnvel neikvæðir í 3-4% verðbólgu. Manni sundlar við að heyra í fréttum gríðarlegar hagnaðartölur bankanna sem þýðir að þeir bólgna út af íslenskum krónum. Sem betur fer koma gjaldeyrishöftin í veg fyrir að hægt sé að flytja þessa peninga úr landi hömlulaust því til þess höfum við alls ekki gjaldeyri og munum ekki eiga á næstu árum.
Við eigum svo mikla möguleika ef rétt er á haldið
Það er hrópað á innlendar fjárfestingar til að örva atvinnulíf og framleiðslu og þar með nettó gjaldeyristekjur. Ferðaþjónustan, sjávarútvegurinn, landbúnaðurinn, garðyrkjan, fiskeldið, matvælavinnslan og nýsköpunin skortir fjármagn og það eru til krónur sem þarf að koma í notkun. Það sér hver heilvita maður að vinnulag og sjálftökuvald Seðlabankans í þessum efnum gengur ekki. Kallað er eftir og lofað niðurfellingu skulda hjá bæði einstaklingum og fyrirtækjum. Sum fyrirtæki hafa nú þegar fengið miklar niðurfellingar önnur ekki. Síðan eiga þau að keppa innbyrðis á þessum háu vöxtum. Sér nú hvert er óréttlætið. Fyrsta skrefið í þessum efnum ætti að vera það að lækka vextina og jafna aðstöðumuninn.
Beitum íslensku krónunni til eflingar atvinnulífs
Háir stýrivextir Seðlabankans og síðan bankakerfisins í heild hafa tafið uppbyggingu og nýsköpun í atvinnulífinu og þrengt með óeðlilegum hætti að skuldurum. Fyrsta skrefið ætti að vera að lækka stýrivextina umtalsvert t.d. niður í 2-3% svipað eins og er í nágrannalöndunum. Við eigum að koma í notkun þeim peningum, íslenskum krónum sem hlaðast upp í bönkunum hér heima til hagsbóta fyrir almenning og eflingar atvinnulífs í landinu á okkar eigin forsendum . Seðlabankinn segist eiga að fara að stefna stjórnvalda. Látum hann gera það.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 13. maí 2013
Ég á líf - Ég á líf - vegna þín
Framlag Íslands til Euróvisionkeppninnar í ár er Ég á líf sem er óður til lífsins og ástarinnar.
Textinn er í senn einfaldur og afar fallegur. Skilaboðin eru skýr. Trúin á lífið og það getur þurft að klífa yfir fjöllin til að finna ástina sem gefur kraftinn og nærir trúna. Við settumst niður, við Valdimar Kolka, dóttursonur, og Katrín Kolka, sonardóttir, og slógum inn í tölvuna þetta fallega ljóð. Valdimar fór einn daginn og söng það í skólanum. Ég set það hér inn á síðuna og hvet sem flesta til að taka undir með Eyþóri Inga.
Lagði ég af stað í það langa ferðalag
ég áfram gekk í villu eirðarlausHugsaði ekki um neitt, ekki fram á næsta dag
Einveru og friðsemdina kaus
Ég á líf, ég á lífyfir erfiðleika svíf
Ég á líf, ég á líf vegna þín
Þegar móti mér blæs
yfir fjöllin há ég klíf
Ég á líf, ég á líf, ég á líf
Ég skildi ekki ástina sem öllu hreyfir við
þorði ekki að faðma og vera til.
Fannst sem ætti ekki skilið að opna huga minn
Og hleypa bjartri ástinni þar inn.
Ég á líf , ég á lífYfir erfiðleika svíf
Ég á líf , ég á líf vegna þín.
Þegar móti mér blæsYfir fjöllin há ég klíf
Ég á líf, ég á líf vegna þín
Ég á líf, ég á líf.
Og ég trúi því
já ég trúi því
kannski opnast fagrar gáttir himins
Yfir flæðir fegursta ástin
hún umvefur mig alein
Ég á líf, ég á líf
yfir erfiðleika svíf
Ég á líf, ég á líf vegna þín
Þegar móti mér blæs
yfir fjöllin há ég klíf
Ég á líf, ég á líf vegna þín
Ég á líf, ég á líf, ég á líf
(Lag og texti: Örlygur Smári & Pétur Örn Guðmundsson. Flytjandi: Eyþór Ingi.)
Um leið og við óskum góðs gengis í Euróvisionkepnninni er gott að hafa með sér aukapar af sauðskinnsskóm yfir fjöllin.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 7. maí 2013
Að standa við stóru orðin
Af hálfu Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks hefur því verið lýst yfir að hætta beri við umsókn Íslands að ESB. Það þýðir í raun að Alþingi feli ríkisstjórninni að afturkalla umsóknina.
Ný umsókn verði því aðeins send að þjóðin hafi staðfest vilja sinn til aðildar að ESB í þjóðaratkvæðagreiðslu. Slíkt er alveg sjálfstætt mál.
Ýmsir þingmenn þessara flokka hafa tekið mjög djúpt í árinni og munu eiga mjög erfitt með að verja að annað verði gert. Það skiptir miklu máli, að myndi þessir flokkar næstu ríkisstjórn verði staðið strax við þessi fyrirheit. Fjallað er um stöðu flokkanna í málinu á vef Heimsýnar í dag.
Þó nú eigi að heita hlé á samningum um nýja kafla þá er stjórnkerfið allt á fullu í framhaldi umsóknarinnar. Nýjasta dæmið eru fréttir frá ESB um kröfur þeirra á hendur Íslendinga í fiskveiðimálum.
Þar er ekkert gefið eftir enda ekki neins að vænta í þeim efnum. Lög ESB munu gilda um þau mál sem önnur hér á landi göngum við í Bandalagið.
ESB umsóknin hefur tafið endurreisn og mótun framtíðarstefnu hér innanlands í atvinnumálum, efnahagsmálum, gjaldeyrismálum svo nokkuð sé nefnt.
Meðan á umsóknarferlinu stendur geta Íslendingar trauðla sett eigin lög eða reglugerðir sem ganga í berhögg við kröfur ESB.
Gjaldmiðilsumræðan ein sér og möguleg upptaka evru hefur verið leidd eftir algjörum villuljósum og tafið markvissar aðgerðir í peningamálum.
Samningar um Makríl geta t.d. ekki haldið áfram undir hótunum ESB.
Það var með þingsályktun frá Alþingi sem samþykkt var að sækja um aðild að ESB undir skilgreindum formerkjum sem tekin voru fram í greinargerð með tillögunni.
Mitt mat er því að Alþingi þurfi nú í vor að samþykkja afturköllun þessarar umsóknar.
Það að láta hana liggja óafgreidda undir formerkjun stöðvunar eða hlés þýðir að afram er hún hangandi yfir, áfram verður unnið leynt og ljóst að framhaldi hennar og sú kvörn malar.
Ég þekki það hversu greinar bogna og traustustu tré brotna í svona málum.
ESB kvörnin kanna að mala .
Stjórnmál og samfélag | Breytt 10.5.2013 kl. 21:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 5. maí 2013
Krónu- ríkisstjórn komin á koppinn ?
Það er gott að væntanlegir forystumenn í nýrri ríkisstjórn skulu byrja sinn formlega hitting í "Krónunni" í morgun. Efnahagslíf Íslendinga og trú á land á þjóð mun byggjast á íslensku krónunni og því verðgildi sem að baki henni stendur. Við munum nú sem fyrr þurfa að treysta á okkur sjálf þar á meðal okkar eigin mynt. Því fyrr sem flestir átta sig á því þeim mun betra fyrir framtíðina
Það var hreint óþolandi að heyra fráfarandi forsætisráðherra frá fyrsta degi ríkisstjórnar stöðugt hallmæla íslensku krónunni og taka ætti upp ervu þá strax. Mér fannst hún nú reyndar aldrei skilja sjálf mjög mikið í því sem hún var að segja. Allur vandi átti að leysast með umsókn og innlimun í ESB. Heimiliskettirnir í kringum forsætisráðherrann í ríkisstjórn og hennar nánustu möluðu sama Evrukattasönginn og nudduðu sér utan í fótleggina og fengu strokur á bakið í staðinn. Og öll smákattahjörðin hvort heldur var innan samtaka atvinnurekenda eða ASÍ mjálmuðu sama sönginn. Sá svikasöngur sem sunginn var evrunni og gegn gjaldmiðli eigin þjóðar myndu einhverjir kalla að varði við drottinssvik.
Evrusöngurinn verður nú vonandi endanlega kveðinn niður um leið og umsóknin að ESB verður afturkölluð og þjóðin beðin afsökunar á því að íslensk stjórnvöld skuli upp á eindæmi og gegn vilja hennar hafa lagt til að framselja fullveldið erlendu ríkjasambandi. Það er mikið á sig leggjandi til að ESB umsóknin verði afturkölluð refjalaust og þegar í stað og áróðursmiðstöð ESB hér á landi lokað. Það eru hátíðleg kosningaloforð sem hvorki Framsókn né Sjálfstæðisflokkur geta svikið.
Hins vegar verður maður hugsi yfir fréttaflutningi síðustu daga af stjórnarmyndunarviðræðum. Alltaf er greint frá því sérstaklega að formennirinr hittist aleinir til að ráða málum og ná saman. Mikið er lagt upp úr því að formennirnir nái vel saman. Þetta eintal formannanna kann ekki góðri lukku að stýra því ein megin ástæða að baki hrunsins var í rannsóknarskýrslu Alþingis talin foringjadýrkun og taumlaust formannaræði. Slíkt formanna- og foringjaræði var einmitt einnig stór hluti af vanda fráfarandi ríkisstjórnar frá fyrsta degi og átti drjúgan þátt í því hvernig fór fyrir henni.
Vonandi er að þau mistök endurtaki sig ekki. En foringjadýrkun nærir valdahégómann og getur byrgt jafnvel bestu mönnum sýn einkum hjá þeim sem eru veikir fyrir í þeim efnum eins og dæmin sanna.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 1. maí 2013
Náttúruvernd 1. maí - af heilum hug?
Landvernd og fleiri umhverfissamtök hafa boðað til kröfugöngu fyrir náttúruvernd í dag.
Verndun umhverfisins og einstakra náttúruvætta er órjúfanlegur hluti af fullveldisbaráttu og sjálfstæði hverrar þjóðar. Fullt tilefni er til að veita stjórnvöldum og samtökum atvinnulífs aðhald í umhverfismálum. Að mínu mati væru kröfuspjöld fyrir verndun náttúrunnar eðlilegur hlutur í kröfugöngunni sjálfri, frekar en boðað sé til sérstakrar göngu ofan í kröfugöngu verkamanna á alþjóðlegum baráttudegi þeirra. Verkalýðsbarátta og umhverfisvernd eiga samleið.
Saman fari orð og athafnir í náttúruvernd
Það er eins með náttúruvernd og önnur mál að saman þurfa að fara orð og athafnir, ekki hvað síst hjá þeim sem veljast til forystu og ábyrgðar í þjóðfélaginu. Úr starfi mínu sem ráðherra er mér minnistætt ferlið á rammaáætluninni í ríkisstjórn og á þingi. Eitt af mínum fyrstu verkum sem ráðherra var að skipta um fulltrúa sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra í verkefnistjórn um rammaáætlun og setja þekkta baráttumanneskju í náttúruvernd, Björg Evu Erlendsdóttur, sem fulltrúa minn. Sú skipan vakti mótmæli og mikinn óróa í ríkisstjórn - verið væri að rugga bátnum í einu pólitískasta máli ríkisstjórnarinnar, eins og komist var að orði af hálfu talsmanns forsætisráðherra sem reyndi að stöðva skipan fulltrúa míns í verkefnisstjórnina á þeim tíma. Aðrir ráðherrar höfðu ekki til þess kjark eða vilja að fara í fótspor mín, þóttust þeir þó vera miklir umhverfissinnar.
VG brást í náttúruverndarmálum
Ég var mjög hugsi yfir þeirri afstöðu og vinnubrögðum sem síðan komu í ljós hjá ríkisstjórn VG og Samfylkingar í vinnunni við rammááætlun. Við áttum þar gullin tækifæri. Ég lýsti vonbrigðum mínum með vinnu umhverfisráðherra og iðnaðarráðherra að rammaáætlun og þá eftirgjöf sem gefin var frá grunnstefnu VG og reyndar beggja flokkanna. Í stað verndaráætlunar var lögð fram rammaáætlun um virkjanir. Ég lýsti vanþóknun minni á þeirri nálgun bæði innan ríkisstjórnar, þingflokks og á Alþingi. Fyrir mér voru umhverfismálin, verndun jökuláa og háhitasvæða og stöðvun stórvirkjana og orkufrekrar stóriðju mikið hjartans mál. Báðir stjórnarflokkarnir höfðu t.d. lýst yfir í þingsályktunatillögum og stefnuyfirlýsingum að friðun Jökulánna í Skagafirði, Skjálfandafljóts og háhitasvæða á miðhálendinu og Reykjanesi væri forgangsmál af hálfu þessara flokka. Allt annað var síðan upp á teningnum.
Þrátt fyrir fögur fyrirheit kom Magma-málið, þar sem ég lét bóka andstöðu mína við gjörðir ríkisstjórnarinnar og eftirgjöf sem gekk þvert á yfirlýsta stefnu VG og ítrekaðar samþykktir.
Ég hafði mikla fyrirvara við rammaáætlunin eins og hún koma fram þar sem gert var ráð fyrir því m.a. að í stað verndar skyldu Jökulárnar í Skagafirði og Skjálfandafljót sett í biðflokk fyrir virkjanir og Bjarnarflag í nýtingarflokk. Reykjanesskaginn var nánast allur settur í virkjanaflokk. Svo mætti áfram telja.
Bjarnarflag í nýtingarflokk og stóriðja á Bakka
Það urðu mér mikil vonbrigði þegar þingmenn VG, umhverfisverndarflokksins sjálfs, felldu tillögu Atla Gíslasonar og Lilju Mósesdóttur sem ég studdi um að Bjarnarflag yrði tekið úr virkjanaflokki og sett í biðflokk. Nokkru síðar samþykkti Alþingi og þar með taldir flestir þingmenn VG ríkisstyrkta stóriðju á Bakka við Húsavík þar sem gert var ráð fyrir orku úr virkjun í Bjarnarflagi eins og nýsamþykkt rammaáætlun gerði ráð fyrir. (Sjá: http://www.althingi.is/dba-bin/atkvgr.pl?nnafnak=48088)
Rammaáætlunin hafði verið svo lengi til meðferðar að fátt átti þar að koma þingmönnum á óvart. Hinsvegar gerðist það að þegar leið að kosningum og fram kom andstaða fleiri náttúruverndarsinna við virkjun í Bjarnarflagi, sem myndi enn frekar ógna lífríki Mývatns lögðu sömu þingmenn og ráðherrar á flótta frá atkvæðagreiðslu sinni á Alþingi. Hástemmdar auglýsingar um verndun Bjarnarflags hljómuðu í fjölmiðlum frá sama fólki og nokkrum mánuðum áður höfðu í tvígang samþykkt á Alþingi að virkja í Bjarnarflagi. Þessu er gerð góð skil í grein Atla Gíslasonar og Þorsteins Bergssonar, VG fórnaði Mývatni. (Sjá: http://www.mbl.is/greinasafn/grein/1463458/?item_num=1&searchid=9bdf387ba1b5ba0d171e0a31710c781bd61aa355)
Heiðarleiki í stað tvöfeldni
Tvöfeldni í málflutningi hef ég aldrei kunnað að meta. Náttúran þarf á einurð stuðningsmanna sinna að halda en ekki tækifærismennsku. Vafalaust munu einhverjir þeir sem felldu tillöguna um að setja Bjarnarflagsvirkjun í bið og samþykktu orkufreka stóriðju á Bakka taka kinnroðalaust þátt í göngu náttúruverndarsinna í dag. Þau munu jafnvel bera kröfuspjöld um verndun Bjarnarflags og Mývatns og jökulánna í Skagafirði. Það er eitt að þykjast standa með náttúrunni en bregðast henni svo þegar á reynir.Þetta er alveg nákvæmlega sama hundalógik og að þykjast vera á móti ESB-umsókn og -aðild en greiða samt atkvæði með innlimunarferlinu! Ég ber virðingu fyrir rökstuddum skoðunum annarra þótt ég sé þeim ósammála og það er líka hægt að skipta um skoðun og viðurkenna mistök sín en mikilvægt er að standa með sannfæringu sinni af heiðarleika, líka í náttúruverndarmálum.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 29. apríl 2013
Að loknum kosningum
Nú að loknum alþingiskosningum er mér efst í huga þakklæti til alls þess fjölda stuðningsfólks sem bæði hvatti mig og studdi og okkur frambjóðendur í kosningabaráttunni. Sérstaklega er ég þakklátur kjósendum mínum og samherjum í Norðvesturkjördæmi fyrir góða vinnu og dyggan stuðning.
Sjálfum fannst mér kosningabaráttan ákaflega gefandi og skemmtileg. Hvarvetna í kjördæminu sem ég fór fann ég mikinn hugmyndafræðilegan samhljóm með íbúum enda þekki ég aðstæður vel.
Fullveldismálin, afturköllun umsóknar að ESB, sjávarútvegsmálin og baráttan fyrir stöðu sjávarbyggðanna, landbúnaður, matvælavinnsla, ferðaþjónustan, samgöngumál kjördæmisins, raunveruleg náttúruvernd og ekki síst heilbrigðisþjónustan á landsbyggðinni - öll þessi baráttumál sem við stöndum fyrir komu skýrt fram í kosningabaráttunni og höfðu sín áhrif.
Svo sannarlega vildi ég hafa náð kosningu inn á Alþingi og geta beitt kröftum mínum þar. Ég mun áfram sem hingað til berjast með samherjum mínum í kjördæminu og fólkinu í landinu fyrir hugsjónum okkar og baráttumálum og leita þeim stuðnings þótt það verði á öðrum vettvangi en ræðustóli Alþingis
Bæði Framsóknarflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn, sigurvegarar kosninganna, lofuðu því að eitt fyrsta verk þeirra í ríkisstjórn yrði að afturkalla ESB-umsóknina og loka áróðurmiðstöð ESB hér á landi. Þessi skilyrði væru af þeirra hálfu óumsemjanleg.
Úrslit kosninganna undirstrikuðu mikilvægi þess að frambjóðendur og flokkar standi við grunnstefnumál sín og kosningaloforð þegar þeir komast í ríkisstjórn og hverjar afleiðingarnar verða ef það bregst. Traustið er þá týnt og verður ekki endurunnið með loforðum og auglýsngaherferð. Það verða ávalt verkin sem tala.
Ég óska stuðningsfólki mínu og landsmönnum öllum gleðilegs sumars.
(Mynd: Jón Bjarnason og Ingibjörg Sólveig Kolka fyrir framan kjörstað á Blönduósi. Í baksýn Héraðshæli Húnvetninga.)
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 27. apríl 2013
Lækkum vexti til að styrkja innlenda fjárfestingu!
Háir vextir Seðlabankans eru hagstjórnarleg mistök. Nú eru liðin rúmlega fjögur ár frá hruni og það liggur fyrir að væntingar um nýtt hagkerfi hafa ekki náð fram að ganga. Sérstaklega er bagalegt að innlend fjárfesting hefur ekki enn náð að rétta úr kútnum. Þvert á móti er því nú einróma spáð að fjárfestingar muni dragast saman á þessu ári miðað við árið á undan. Og var þá árið 2012 fremur aumt ár fyrir fjárfestingu. Þetta er mikill skaði. Við þurfum að byggja upp nýtt Íslands, skapa ný störf í nýjum greinum er byggja á sjálfbærni og útflutningi. Og ný fjárfesting er mikilvæg forsenda þessarar nýju sóknar.
Ýmsir hafa komið með lausnir á þessu fjárfestingarleysi. Sumir vilja selja erlendum auðjöfrum bæði auðlindir og land. Aðrir vilja lokka hingað erlend stórfyrirtæki með loforðum um skattaafslætti og opinberar ívilnanir, og virðast lítil takmörk fyrir því hvað hægt er að ganga langt í þeim efnum.
Enn aðrir halda að allt snúist á réttan kjöl með inngöngu í ESB. Og svo eru þeir til sem vilja þetta allt þrennt.
Lítum okkur nær
En af hverju lítum við okkur ekki nær? Nú eru stýrivextir Seðlabankans 6% sem eru mun hærri vextir en þekkist í nágrannalöndum okkar. Vextirnir voru hækkaðir vegna þess að Seðlabankinn vænti þenslu sem enn hefur ekki komið fram. Það er furðuleg þversögn ef landsmenn vilja gefa allt eftir til þess að draga erlenda fjárfestingu inn í landið á sama tíma og innlendri fjárfestingu er haldið niðri með vöxtum sem eru langt fyrir ofan það sem þekkist erlendis. Ég er á móti þeirri vegferð ríkisstjórnarinnar að gefa erlendum stórfyrirtækjum opinbera styrki og aðgang að íslenskum auðlindum með sérstökum fjárfestingarsamningum. Væri ekki nær að huga betur að heimahögunum?
Sóknarfærin í íslensku atvinnulífi
Íslendingar hafa eigin gjaldmiðil og peningalegt sjálfstæði, sem betur fer. Við eigum að nýta það sjálfstæði til þess að hvetja áfram innlendar fjárfestingar með því lækka vexti verulega og tryggja smáfyrirtækjum og frumkvöðlum andrými til vaxtar? Það eru til nægir innlendir peningar sem bíða eftir verkefnum. Við höfum allt til reiðu til þess að hjálpa okkur sjálf og byggja nýtt Ísland um leið og við tryggjum okkum sjálfum sama fjárfestingarumhverfi og erlent fyrirtæki njóta í sínum heimahögum. Við þurfum einnig nýja tegund af fjárfestingu þar sem ávöxtunarkrafan er mun lægri en hún hefur verið og meiri áhersla lögð á samfélagsleg markmið. Og lægri vextir kalla slíka fjárfestingu fram þar sem minni áhersla er lögð á áhættu og stórgróða.
Hollur er heimafenginn baggi segir gamalt spakmæli. Það hefði aldrei þótt góðs viti í minni sveit að heyja ekki eigið heimatún en ætla að sækja alla heybaggana í aðrar sóknir. Að mínu viti á það enn við í dag.