Í gær var til moldar borinn ljúfur vinur, Guðjón Einar Jónsson, fyrrverandi kennari og skólastjóri.
Við kynnumst mörgu góðu fólki á lífsleiðinni en sumir verða nánari en aðrir og vináttan einlægari og dýpri. Þannig var með kynni og samband okkar Guðjóns sem við fylgdum til hinstu hvíldar í gær. Leiðirnar lágu saman þegar Katrín Kolka dóttir okkar hóf sambúð Eiríki dóttursyni þeirra Guðjóns og Alrúnar. Fljótlega urðu þau hjónin fastagestir í fjölskylduboðum og vinaheimsóknum. Við fundum vel hve Katrín bar góðan hug til þeirra og að það var gagnkvæmt. Og dóttursonurinn Valdimar Kolka kunni vel að meta hlýja glettni langafans.
Guðjón var svo sannarlega hrókur alls fagnaðar hvar sem hann fór, kvikur í hreyfingum, leiftrandi í samræðum, víðlesinn og margfróður. Hann hafði líka sínar skoðanir á málum. Veistu hvað, Jón, sagði hann eitt sinn þegar talið barst að slæmri færð og óveðri. Ég veit fátt skemmtilegra en að keyra bílinn minn í hríðarbyl og ófærð. Það tekur sko í, sagði kappinn og ók sér um leið. Nokkuð lýsandi fyrir kraftinn og baráttugleðina sem einkenndi fas hans allt.
Við eigum ljúfar minningar frá kaffispjalli við eldhúsborðið á heimili þeirra hjóna í Hafnarfirði þar sem margt bar á góma svo sem landsmálin en ekki síður frásagnir hans af samferðafólki og ferðum þeirra Alrúnar um landið.
Guðjón var sérlega róttækur í skoðunum, einarður félagshyggjumaður með ríka réttlætiskennd. Á heimaslóðum hans á Austfjörðum var hann kallaður Kommúnistinn með stóru K-i og var stoltur af.
Hann var eitt sinn á fundi á Akureyri og varð samferða miklum sjálfstæðismanni heim í gistingu seint um kvöld. Sá var þó nokkuð hærri en Guðjón og talsverður á velli. Götur voru blautar og pollar hér og hvar. Þessi göngufélagi Guðjóns sem var nokkuð við skál, vildi ybbast upp á hann og leggja þennan kommúnista í svaðið þar sem hann ætti heima. Guðjón var þéttur á velli og sterkur þótt lágvaxinn væri. Fór svo að honum leiddist þetta þóf og tók undir bringspalirnar á göngufélaganum, hóf hann á loft, setti hann á rassinn ofan í drullupoll og sagði hóglátlega: Svona fer kommúnistinn með sjálfstæðismanninn ef hann hegðar sér ekki sæmilega. Þessa sögu sagði Guðjón okkur nokkrum dögum fyrir andlátið og hló dátt við.
Guðjón naut þess að ferðast um landið, var mikill náttúruunnandi og prýðilega hagmæltur. Með kvæðinu Í skóginum fléttaði hann saman skáldgáfuna og lotninguna fyrir vorinu og grænu laufi skógarins:
Að ganga í grænum skógi
það græðir sérhvert mein.
Og þessu fallega kvæði lýkur hann með þakkaróði:
Og því skal þessa njóta
og þakka sérhvert blað.
Því guð sem lífið gefur,
hann gefur líka það.
Guðjón lét sig svo sannarlega málefni samtímans á hverjum tíma varða. Í grein sem hann kallar Fordómar og skrifaði í Morgunblaðið 29. desember 2007 fjallaði hann um þetta hugtak frá ýmsum hliðum. Þar segir hann m.a.:
Að fordæma annað fólk fyrir að komast að annarri niðurstöðu en það sjálft er reyndar kallað þröngsýni eða heimska.
Greininni lýkur Guðjón með tilvitnun í Sigurbjörn biskup sem gætu verið einkunnarorð hans sjálfs:
Betri er íhugandi efi en hugsunarlaus trú.
Við hjónin erum þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast Guðjóni og eiga hann að vini. Við sendum Alrúnu og fjölskyldunni allri einlægar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning góðs vinar.
------------------------------------------
Æviágrip Guðjóns:
Guðjón Einar Jónsson
Guðjón Einar Jónsson fæddist á Eskifirði 20. apríl 1931 og bjó þar til 10 ára aldurs er hann fluttist með foreldrum sínum að Hólmum í Reyðarfirði. Hann lést 12. desember 2015.
Foreldrar Guðjóns voru Jón Kristinn Guðjónsson, f. 5.6. 1906, frá Kolmúla, Fáskrúðsfirði, og bóndi á Hólmum í Reyðarfirði, og kona hans Þóra Guðný Jónsdóttir, f. 5.10. 1910, Snædal frá Brautarholti, Vopnafirði, húsmóðir. Systkini Guðjóns voru alls 11 talsins og eru 6 þeirra á lífi: Ragnhildur, f. 25.12. 1929, Hafnarfirði; Kristinn Illugi, f. 26.3. 1932, d. 6.2. 1939; Jón Snædal, f. 13.6. 1933, Eskifirði, d. 12.8. 011; Gísli, f. 12.2. 1935, Vopnafirði, d. 31.7. 1998; Guðni Þór, f. 7.11. 1936, Eskifirði; Kristín Selma, f. 11.1. 1938, Vogum, Vatnsleysuströnd; Auðbergur, f. 16.3. 1943, Egilsstöðum; Þorvaldur, f. 4.6. 1944, Reyðarfirði; Helga Ósk, f. 14.4. 1949, Reyðarfirði. Tvö systkini dóu við fæðingu.
Guðjón kvæntist 24. september 1953 Alrúnu Klausen sjúkraliða, f. 18. júlí 1933. Hún er dóttir Ingolf Klausen útgerðarmanns og konu hans Herdísar Jónatansdóttur Klausen húsmóður, Eskifirði, sem bæði eru látin.
Börn Guðjóns og Alrúnar eru:
1) Jón Þór, f. 8.3. 1955, Reykjanesbæ, kvæntur Helgu Sigríði Kristjánsdóttur, þau eiga fjögur börn.
2) Selma Dröfn, f. 13.8. 1957, Skagafirði, kvænt Valdimar Eiríkssyni og eiga þau þrjú börn.
3) Inga Dís, f. 7.10. 1960, Hafnarfirði, kvænt Steinari Steinarssyni og eiga þau 3 börn.
4) Jónatan Már, f. 5.7. 1962. Akureyri.
5) Guðjón Rúnar, f. 21.12. 1966, Akureyri, í sambúð með Þórey Einarsdóttur, þau eiga fjögur börn.
Guðjón á eina dóttur sem býr í Noregi, Hallveigu Guðjónsdóttur, f. 14.1. 1954 og á hún þrjú börn.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.