Dómkirkjan á Hólum í Hjaltadal 250 ára

  „Náttúran hefur gætt Hólastað fegurra og endingarbetra byggingarefni  en unnt er að panta frá öðrum löndum. Nefnilega hinum yfirmáta fagra rauða sandsteini sem þar finnst gnótt af í næsta nágrenni og múr sá er uppbyggður af sem staðið hefur kringum kirkjuna árum saman. Það virðist ósannlegt að fyrirmuna kirkjunni að verða uppbyggð á þann máta sem Herrann sjálfur sýnist hafa ætlast til…“(.Magnús Gíslason amtmaður 21. sept. 1756.)  

 Fyrsta steinkirkja landsins

 Hóladómkirkja, er lifandi minnisvarði um fornan glæsileik og veldi Hóla í Hjaltadal. Núverandi kirkja er ein sú hin minnsta er staðið hefur á Hólum frá stofnun biskupsstóls árið 1106. Hinar  fyrri kirkjur voru hátimbraðar byggingar er annað hvort fuku eða brunnu. Sú kirkja sem nú stendur er aftur á móti fyrsta steinkirkja landsins og líklega eina byggingin hérlendis sem var reist í þegnskyldvinnu. „Þótti víst mörgum betra að þéna að Brimarhólmi en standa í steinhöggi í Hólatúni“ . Byggingasaga kirkjunnar er í raun stórmerkileg og verður gerð nákvæm skil á Hólahátíð.   Hin rauða steinkirkja hefur staðið af sér endurtekin harðindi, hörmungar og niðurlægingu er riðu yfir Norðurland og Ísland allt. Hún stendur sem skjólshús yfir dýrmæta helgigripi allt frá kaþólskri tíð og minna á stórbrotna menningu á Hólastað. Þeir munir eru þó aðeins brot af því staðurinn eitt sinn átti, en kirkjan var rænd af dönskum hermönnum eftir aftöku Jóns Arasonar 1550. Þegar litið er yfir sögu Hólakirkju virðist þó sem hagræðing, skammsýni og aurasálgæsla hafi verið hættulegasti óvinur Hólastaðar fremur en harðindi og skepnufellar.   

 Lok biskupsstóls á Hólum 1801.

Hannes Pétursson lýsir atburðarrásinni í bók sinni „Rauða myrkur“:  „Þá höfðu lengi gnúð á harðindi með hungurdauða og pestum ; að norðan komu ísar og bruni, aska og eldur að sunnan. Svarf þetta allt svo nærri jarðeignum og landsetum stólsins  að tekjur hans urðu valtar og stundum mjög rýrar. Setrið á Hólum sem átti sér þrjár miklar rætur eins og hið aldna tré norrænnar goðsögu , lafði nú uppi og mornaði og þornaði, uns konungur vor sá að baðmurinn var merktur dauðanum.  Þá lét hann gera tvö bréf , hið fyrra 14. júní 1799 og dæmdi þar prentverkið af norðlendingum, bráðum 300 ára gamalt og hið síðara 2. október 1801, er afnam biskupsdóm og latínu skóla á Hólum. Ári síðar voru allar stólsjarðir í Skagafjarðarsýslu,um 200 talsins með hjáleigum seldar á uppboðsþingum. Sömu leið fór jarðargóss stólsins í öðrum sýslum stiftisins;

 „Hóladómkirkja sjálf  átti sér eftir sölu jarðarinnar 1802 engin réttindi, hún gleymdist á uppboðsþingum.  Stefán Þórarinsson amtmaður á Möðruvöllum sem þá keypti Hóla átti hana ekki né heldur söfnuðurinn. Kirkjan stóð í Hólagarði öllum réttindum og hlunnindum rúin, eigendalaus, eignalaus og fjárhaldsmannslaus.“

 

Jarðarmatsnefnd konungs mat máliðs svo:„ Þyrfti Hólakirkja sérlega mikillar aðgjörðar við, þá skyldi brjóta hana niður með því að hún lægi illa og væri of stór handa svo lítilli sókn og reisa aðra kirkju mátulega á Kálfsstöðum“.

 Hólar í einkaeign

Þessi umsögn mun hafa leitt til þess að konungur hafi af ráðnum hug ekki viljað leggja það á nokkurn, hvorki söfnuð né jarðareiganda að bera eignarábyrgð á kirkjunni.  Kirkjan á Hólum átti sig sjálf.Nýir eigendur á Hólum létu vera sitt fyrsta verk að rífa mörg hús staðarins og selja timbrið, og þar á meðal hina 500 ára gömlu Auðunnarstofu. Hefðu þeir án efa rifið kirkjuna einnig ef hún hefði verið úr timbri og í þeirra eigu. Gekk svo  til ársins 1824 er Benedikt Vigfússon frá Garði í Kelduhverfi kaupir Hóla. Hann var kvæntur Þorbjörgu Jónsdóttur Konráðssonar frá Mælifelli. Bæði vel auðug.  Hér tók sá við Hólum sem reisti staðinn úr rústum og húsaði allan upp að nýju. Hann  varð skjótt einn af auðugustu mönnum landsins. Dómkirkjan á Hólum naut atorku Benedikts sem endurbætti hana og lagfærði sem sína eign, en hún var þá mjög að fótum komin, án viðhalds í hartnær hálfa öld. Með Bendikt Vigfússyni er  þögguð niður umræðan um að rífa Hólakirkju. En Bendikt vissi sem var að hann var ekki eilífur og framtíð dómkirkjunnar var ekki frekar örugg eftir hans dag en var þegar hann kom heim að Hólum.  

 Vörn Hólakirkju- Bænarskrá Benedikts

Árið 1862 sendi Benedikt bænarskrá til Alþingis um fjárframlag til Hólakirkju. Bendir hann á að Hóladómkirkja sé einskonar sjálfseignarstofnun en séreignir hennar hafi verið seldar undan henni án endurgjalds. Vill hann að Alþingi og kóngurinn greiði henni bætur og tryggi rekstur kirkjunnar og viðhald um ókomin ár.Málið fékk mikla umræðu á Alþingi. Milliþinganefnd undir forystu Arnljóts Ólafssonar skilaði áliti er þing kom saman árið 1865.Tekur nefndin undir óskir Bendikts og leggur til að veitt verði fé til kirkjunnar og staða hennar tryggð til framtíðar. En hvorki Alþingi né kirkjuyfirvöld voru reiðubúin að taka á sig eigendaábyrgð kirkjunnar né heldur töldu sér það heimilt án undangengins dóms. Höfða þyrfti dómsmál til að fá úr því skorið hver ætti Hóladómkirkju. Þar til yrði að líta svo á að kirkjan ætti sig sjálf en eigandi Hóla hlyti að bera ábyrgð á henni. Benedikt hefði sýnt það að hann hefði vel efni á að standa undir rekstri hennar og viðhaldi og væri eðlilegast að svo yrði áfram. Benedikt deyr 1868. 

  Hólar í höndum  Norðlendinga

Það varð Hólakirkju til bjargar að Skagafjarðarsýsla kaupir Hóla 1881 og stofna þar öflugan Búnaðarskóla, nýjan Hólaskóla . Norðlendingar sameinuðust  síðan um rekstur hans.  Aftur eru Hólar komnir í þjóðbraut. Þeir öxluðu einnig ábyrgð á dómkirkjunni. Viðhald kirkjunnar var órjúfanlegur þáttur í rekstri skóla og staðar. Hélst svo einnig eftir að Hólar urðu eign ríkisins.  Sérstaða Hóladómkirkju að eiga sig sjálf hefur verið virt. Reksturinn og viðhald er á ábyrgð ríkisins en falin í hendur sérstakrar Hólanefndar: vígslubiskups, rektors Hólaskóla, prófasts Skagfirðinga og formanns sóknarnefndar. Þegar turninn var reistur við hlið dómkirkjunnar árið 1950 á 400 ára ártíð Jóns Arasonar og sona hans var einmitt áréttað með gjafabréfi að klukkuturninn væri gefinn Hóladómkirkju.Sama var svo einnig þegar Auðunnarstofa hin nýja  var byggð. Þá afhenti bygginganefnd  Stofunnar Hóladómkirkju húsið til eignar og varðveislu.  Var það gert meðvitað því eignarleg staða Hóladómkirkju er sú að hún á sig sjálf.  Sú staða bjargaði kirkjunni frá niðurrifi í gegnum mörg erfið ár og fer best á því að sú verði staða hennar áfram. 

 Endurreisn Hóla 1981

Það hafa ávallt skipst á skin og skúrir í sögu Hóla. Um 1980 var svo komið að formlegt skólahald hafði lagst af og framtíðin óviss. Háværar raddir, líkt og 200 árum áður töldu að leggja bæri staðinn niður. Þá risu Norðlendingar aftur stað sínum til varnar en svo vildi til að í ríkisstjórn Gunnars Thoroddsen sátu  atkvæðamiklir norðlenskir ráðherrar eins og  Pálmi Jónsson á Akri landbúnaðarráðherra og Ragnar Arnalds fjármálaráðherra. Ég hygg að það ásamt öflugum einstaklingum heimafyrir hafi ráðið úrslitum um að sú ríkisstjórn tók þá ákvörðun árið 1980 að endurreisa Hóla. Það var þá sem var kallaður heim til Hóla og átti því láni að fagna að stýra þeirri endurreisn ásamt mörgu öðru góðu fólki. Mér er mjög minnisstæð sú orðræða sem ég mætti á þeim tíma, að hin gömlu og veglegu skólahús staðarins væri  svo úr sér gengin að óvíst væri hvort borgaði sig að gera þau upp. Ég vildi að skólahúsið yrði gert upp og það varð. Staðurinn hefur nú verið húsaður upp að nýju, skólahúsið stendur tignarlegt og engum dettur nú í hug að láta það grotna niður, sem þó lá fyrir um 1980. 

Hóladómkirkja- biskupssetur - skóli

Forvígismenn Hólaskóla og Hólastaður litu á ávallt hann sem eina heild með skóla, kirkju – vísindi og menningu. Því hlutu endurbætur á Hóladómkirkju að verða liður í átakinu svo og flutningur vígslubiskupsembættisins heim að Hólum. Þetta hefur nú hvorutveggja gengið eftir. Þar með hafa verið endurreistar þær stoðir, ræturnar sem Hólar hvíldu á um aldir, en voru höggnar af með konungsbréfunum 1798 og 1802. Hólar í Hjaltadal eru  í dag eitt öflugusta menntasetur á landsbyggðinniNú er við fögnum 250 ára afmælis Hóladómkirkju tek ég undir orð vinar míns Gunnars Eyjólfssonar leikara, sem vann hug og hjörtu Skagfirðinga er hann lék Jón Arason biskup heima á Hólum þjóðhátíðarárið 1974: „Ég skal segja þér það Jón, þegar ég kem hér að aðalhliðinu heim að Hólum grípur mig sterk tilfinning: 

 „Drag skó þína af fótum þér því staðurinn sem þú stendur á er heilög jörð“.

 Velkomin heim að Hólum. 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband