Miðvikudagur, 10. september 2008
Skorað á ráðherra að hafna hráakjöts- frumvarpinu !
Greinagerð:
Heilbrigði og rekjanleiki íslenskra búvara er með því besta sem gerist í heiminum. Mikilvægt er að fórna ekki þessum árangri með því að heimila óheftan innflutning á hrárri kjötvöru. Þetta frumvarp teflir auk þess mörgum störfum er tengjast landbúnaði beint og óbeint í mikla hættu.
Um 10% bænda landsins saman á fundi í Dalabúð
Félag sauðfjárbænda í Dalasýslu stóð nýlega fyrir opnum fundi um málefni sauðfjárræktar í Dalabúð. Fundurinn var mjög fjölsóttur, en þar mættu um 300 sauðfjárbændur og var húsið fullt útúr dyrum. Fundur þessi var boðaður vegna þess að sauðfjárbændur hafa miklar áhyggjur af núverandi stöðu og framtíðarhorfum í atvinnugreininni. Miklar hækkanir hafa orðið á aðföngum til bænda og má þar nefna 80% hækkun á áburði frá síðasta ári og fyrirséða 50% hækkun á næsta ári. Framleiðsluferli dilkakjöts er mjög langt og verðhækkanir afurða eru lengi að skila sér til bænda.. Margir kvöddu sér hljóðs og áhyggjur manna vegna stöðu sauðfjárræktar voru miklar. Í framhaldi af þessum fundi sendir stjórn Félags sauðfjárbænda í Dalasýslu frá sér eftirfarandi ályktanir en þær fjalla allar um atriði sem komu fram í máli þeirra bænda sem kvöddu sér hljóðs á umræddum fundi. "
Ályktanirnar má sjá í heild sinni á bondi.is
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:24 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.