Þriðjudagur, 27. maí 2008
" Hráa kjötið" sjálfdautt á alþingi !
Skagabyggð Hreppsnefnd Skagabyggðar mótmælir harðlega fram komnu lagafrumvarpi um að innleiða matvælalöggjöf ESB í íslensk lög. Ljóst er að þetta mun verða til þess að störfum hér á landi fækkar og lífskjör í dreifbýli versna mikið. Á sama tíma og nefndir á vegum ríkisins eru að störfum til að styrkja byggðina í dreifbýlinu er ríkisstjórnin að vinna gegn þeim markmiðum með fyrirhugaðri lagasetningu um matvælalöggjöf ESB. Veit ekki hægri höndin hvað sú vinstri gerir? Einnig má hafa í huga að þjóðhagsspár gera ráð fyrir auknu atvinnuleysi hér á landi á næstu árum. Það er vítavert gáleysi að leyfa innflutning á hráu kjöti til landsins vegna hættu á að hingað berist skæðir búfjársjúkdómar. Ekki verður séð að þörf sé á að dýraeigendum erfiðara fyrir en nú er að fá þjónustu dýralækna eins og fyrirhugað er samkvæmt lagafrumvarpinu. Lágmarks krafa er að gerð verði úttekt á þeim áhrifum sem þessi lagasetning kann að hafa á hagsmuni bænda, afurðastöðva og kjötvinnslur áður en lagafrumvarpið verður afgreitt á Alþingi. Réttast væri að hætta strax við þessa vitleysu og fella málið niður.
Húnavatnshreppur: Hreppsnefnd Húnavatnshrepps leggst alfarið gegn fyrirhugaðri innleiðingu ámatvælalöggjöf ESB og skorar á Alþingi að stöðva frumvarpið. Augljóst er að frumvarpið setur landbúnað og vinnslustöðvar í mikið uppnám, ógnar heilbrigði íslensks búfjár og setur matvælaöryggi þjóðarinnar í hættu. Húnavatnshreppur er mikið landbúnaðarsvæði og hreppsnefnd þykir sýnt að meðsamþykkt frumvarpsins verði afkomubrestur hjá íbúum sveitarfélagsins meðófyrirsjáanlegum afleiðingum. Hreppsnefnd Húnavatnshrepps vekur athygli á að forsætisráðherra skipaðiNorðvesturnefnd síðastliðið haust og hefur hún það hlutverk að styrkja byggð ogatvinnu á Norðvesturlandi
Þingeyjarsveit:Í Þingeyjarsveit er landbúnaður undirstöðuatvinnuvegur. Sveitastjórn Þingeyjarsveitar geldur varhug við að frumvarp sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um breytingar á ýmsum lögum vegna endurskoðunar á undanþágum frá I.kafla I. viðauka við EES samninginn og innleiðingar á reglugerð Evrópuþingsins (EB) nr. 178/2002 frá 28. janúar 2002 auk afleiddra gerða. (524. mál Alþingis) verði samþykkt án þess að kannað verði rækilega hver áhrif samþykkts frumvarpsins kunni að hafa á viðgang landbúnaður og vinnslu landbúnaðarafurðaí landinu.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:27 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.