Laugardagur, 24. maí 2008
Þjóðinni skipt í fátæka og ríka
Með aðskilnaði félagslegra og almennra lána Íbúðalánasjóðs, mun fólk verða flokkað enn frekar en orðið er í " hina fátæku og hina ríku" : Annars vegar er þeir sem metnir eru vanburða og eiga að vera á ölmusu" hjá ríkinu; hins vegar eru þeir sem taldir eru bjargálna og fá lán á markaðsvöxtum bankanna - þeir sem metnir eru hæfir fyrir bankana til að græða á. Óbreyttur Íbúðalánasjóður með ríkisábyrgð tryggir jafnrétti fyrir alla.
Hvort ræður: Jóhanna eða Árni Matt ?
Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra skrifar stutta grein í Fréttablaðið þann 19. maí sl. Þar segir hún boðaðar breytingar á Íbúðalánasjóði fela einungis í sér aðskilnað milli almennra lánveitinga og félagslegra lánveitinga". Ekki veit ég hvort það er rétt hjá Jóhönnu að það sé einungis" þessi aðskilnaður sem standi til hjá núverandi ríkisstjórn. Ýmsir ráðherrar ríkisstjórnarinnar hafa ábyrgðarlaust talað út og suður um þetta mál á síðustu dögum og vikum. Hitt er ljóst að Sjálfstæðisflokkurinn og frjálshyggjuöflin innan Samfylkingarinnar vilja Íbúðalánasjóð feigan. Bæði Geir Haarde og Árni Matt. segja það tæpitungulaust.
Ef skilja á milli almennra og félagslegra lánveitinga íbúðarlánasjóð, er það í sjálfu sér stórt mál sem felur í sér grundvallarbreytingu á starfi Íbúðalánasjóðs. Jóhanna verður að tala skýrar, hér verður ekki bæði sleppt og haldið. "Íbúðalánsjóður verður ekki einkavæddur í minni tíð sem ráðherra" sagði Jóhanna á þingi í vikunni. En hve lengi verður Jóhanna ráðherra? Átti ekki að skifta henni út eftir eitt eða tvö ár.? Mig minnir það.
Fátækir og ríkir.
Ég hef trú á Jóhönnu Sigurðardóttur en nú veldur hún mér vonbrigðum.
Með þeirri leið sem hér er boðuð, aðskilnaði félagslegra og almennra lána, mun fólk verða dregið enn frekar í dilka en orðið er í íslensku samfélagi: Annars vegar er þeir sem metnir eru vanburða og eiga að vera á ölmusu" hjá ríkinu; hins vegar eru þeir sem taldir eru bjargálna og fá lán á markaðsvöxtum bankanna - þeir sem metnir eru hæfir fyrir bankana til að græða á.
Það er mikill misskilningur hjá ráðherranum að ímynda sér að hægt sé að reka tvískiptan Íbúðalánasjóð, annan fyrir fátæka og hinn fyrir ríka. Í grunninn er þetta aðför að þeirri jafnaðarhugsjón sem Íbúðalánasjóður byggir á - opinn öllum, óháð þjóðfélagsstöðu, efnahag, búsetu og öðru.
Nái þessar tillögur ríkisstjórnarinnar fram að ganga er í raun verið að grafa verulega undan Íbúðalánasjóði og kasta húsnæðislánum fólks beint í gin viðskiptabankanna með ófyrirsjáanlegum afleiðingum fyrir íbúðarkaupendur og íslenskt samfélag.
Hvar lendir landsbyggðin í flokkunarkerfinu?
Hvar á landsbyggðin að fá lán fyrir sínum eignum þegar einungis" er skilið á milli lána? Ekki lána bankarnir til íbúðakaupa á landsbyggðinni, svo mikið er víst. Í augum fjármagnsafla er landsbyggðarfólk í reynd þriðja flokks þegnar þegar kemur að húsnæðisþörf og aðgangi að fjármagni.
Kannski er landsbyggðin bara fyrirbrigði sem á að heyra fortíðinni til hjá Samfylkingunni? Það virðist margt benda til þess nú um stundir, slíkt er háttalagið á nær öllum sviðum er varðar byggðir landsins.
Ingibjörg Þórðardóttir formaður Félags fasteignasala þekkir greinilega vel aðstæður íbúðakaupenda um land allt. Málflutningur hennar í Kastljósi sl. mánudag fyrir samfélagslegum Íbúðalánasjóði fyrir alla, var bæði sterkur og góður. Hún skilur þessi mál greinilega mun betur en þeir sem með völdin fara.
Ráðherrar ríkisstjórnarinnar tala um málin af mikilli léttúð, enda er væntanlegaeinungis" verið að kollvarpa grunninum að sterkum Íbúðalánasjóði jöfnuðar. Þessi veruleikafirrta ríkisstjórn ætti ef til vill öll að fara í kennslustund til Ingibjargar Þórðardóttur, og með þeim hætti leitast við að nálgast þjóð sína og fólkið í landinu.
Ríkisstjórn viðskila við þjóðina
Í skoðanakönnun Gallup í desember síðastliðnum kom fram að 86% þjóðarinnar vilja hafa Íbúðalánasjóð áfram í óbreyttri mynd. Mér kæmi ekki á óvart þó það hlutfall hafi enn vaxið síðustu mánuði, þrátt fyrir látlausan áróður fjármagnsafla og yfirvalda til hins gagnstæða. Ríkisstjórnin virðist verða æ meir viðskila við þjóðina.
Að mínu viti tryggir maður jöfnuð í samfélaginu m.a. með því að jafna tekjugrunn fólks og veita ókeypis aðgang að öflugri almannaþjónustu s.s. heilsugæslu, en ekki með því að flokka fólk opinberlega niður í húsnæði eftir efnahag. Það sér hver maður sem kynnir sér málin að þessi ójafnaðarleið ríkisstjórnarinnar felur feigðina í sér fyrir Íbúðalánasjóð og þá félagshyggju sem að baki honum býr. Enda er það einmitt það sem fjármagnsöflin vilja.
Íbúðarhúsnæði er ein af grunnþörfum fólks. Það er langsamlega gæfuríkast fyrir þjóðina að hafa öflugan Íbúðalánasjóð með ríkisábyrgð sem veitir grunnlán til íbúðarkaupa þar sem allir hafa sama rétt. Það er enda það sem þjóðin vill.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 25.5.2008 kl. 08:56 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.