Sunnudagur, 18. maí 2008
Geir Haarde og ríkisstjórn hinna ríku
Forsætisráðherrann kemur fram eins og sofandi gestur sem lítið skynjar hvað er að gerast. Samt kveinkar hann sér undan því hve erfitt þetta sé og hann hafi mikið að gera. ( Utanlandsferðirnar taka í ) Í úrræðaleysi sínu skammaðist ráðherrann út í stjórnarandstöðuna og kenndi henni um eigin vesaldóm í efnahagsmálum. Kallaði Geir tillögur stjórnarandstöðunnar gamaldags en hélt sig sjálfur við óbreytta frjálshyggjuna.
Gildi félagshyggju og samhjálpar til vegs á ný !
En er það nú ekki einmitt brýnast að hefja til vegs á ný gömul gildi félagshyggju, samhjálpar og jöfnuðar í stað vaxandi misskiptingar, græðgi og sérhyggju sem hefur vaðið uppi í tíð ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokksins. Er það sú nútímavæðing sem Geir er svo stoltur af? Ljóst er að hann hafði þá ekki lesið ágætt Reykjavíkurbréf Morgunblaðsins í dag, 18. maí.
Bréfið er einn samfelldur áfellisdómur yfir þeirri taumlausu markaðshyggju og græðgisvæðingu sem frjálshyggjuríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins hefur stýrt á síðustu misserum.
Frjálshyggju- Geir
Höfundur bréfsins fordæmir ofurlaun sjálftökuliðsins í viðskiptalífinu sem hófst með einkavæðingu bankanna og ofurtrú íslenkra stjórnvalda á frjálshyggju og taumlausri markaðshyggju sem ráðið hefur ferð á síðustu árum. Hér verða teknar nokkrar tilvitnanir í Reykjavíkurbréfið en lesendur eru hvattir til að kynna sér það í heild sinni: ( millifyrirsagnir JB)
Frjálshyggjan dugar bara í einræðisríkjum !
Til eru kenningar um, að óheft markaðshyggja dugi hvergi nema í einræðisríkjum af einhverju tagi, hvort sem um væri að ræða Chile Pinochets eða Rússland Pútíns. Athyglisverð bréfaskipti á milli Friedrich Hayeks og Margrétar Thatcher eftir að hún var orðin forsætisráðherra Bretlands hníga í þessa átt. Hayek hafði haldið efnahagskerfi Chile á tímum Pinochets mjög að Thatcher, sem var ekki alveg tilbúin til að fallast á sjónarmið hans .
Frjáls markaður á framfærslu hins opinbera
Hin alþjóðlega fjármálakreppa, sem nú stendur yfir, hefur átt mikinn þátt í að setja stórt spurningarmerki við skoðanir þeirra, sem lengst ganga á braut frjálshyggjunnar. Var ekki kenningin sú, að markaðurinn ætti að stjórna sér sjálfur? Hefur hin alþjóðlegi fjármálamarkaður gert það? Er ekki veruleikinn sá í öllum löndum í kringum okkur sá, að opinberir aðilar eru að koma markaðnum til aðstoðar? Eru aðgerðir seðlabanka beggja vegna Atlantshafsins og þar á meðal hér eitthvað annað en að opinberir aðilar séu að rétta markaðnum hjálparhönd?
Að fórna Íbúðalánasjóði í gin frjálshyggjunnar
Nú hafa bankarnir, sem sjálfir kalla í ríkisaðstoð, kært Íbúðalánasjóð til EFTA dómstólsins vegna ríkisábyrgðar á íbúðalánum almennings, grunnstoðum íslenska velferðarkerfisins. Ríkisstjórnin metur auðjöfrana fram yfir almenning og ætlar að fórna Íbúðalánasjóði í gin frjálshyggjunnar.
"Hingað og ekki lengra" !
Morgunblaðið rekur ummæli og áhyggjur ýmissa evrópskara stjórnmálamanna af þróun samfélagsins og vaxandi misskiptingu og einkavæðingu á síðustu árum. En alltaf er það almenningur sem á að borga brúsann:
Financial Times segir að þessar umræður endurspegli áhyggjur ráðherranna af því að kjósendur séu orðnir þreyttir á að heyra frá ríkisstjórnum og seðlabönkum að þeir þurfi að stunda hófsemi í launakröfum til þess að koma böndum á verðbólguna á meðan aðrir geri það ekki ..En hvað sem þessu líður hafa sjónarmið frjálshyggjunnar sótt á og þar á meðal á meginlandi Evrópu. Líta verður á framgreind ummæli evrópskra stjórnmálamanna sem skýra vísbendingu um að þeir ætli að segja: hingað og ekki lengra. Og athyglisvert að það eru ekki bara jafnaðarmenn í Evrópu, sem tala á þann veg, sem hér hefur verið lýst. Angela Merkel, kanslari Þýzkalands, er leiðtogi Kristilegra demókrata, sem er líkari Sjálfstæðisflokknum en nokkrum öðrum flokki á Íslandi. Raunar athyglisvert hvað þeir, sem kalla sig jafnaðarmenn hér eru þögulir um þessa þjóðfélagsþróun. MBL. 18. maí, 2008
Er Geir og ríkisstjórnin sofandi nátttröll ?
Geir Haarde verður að átta sig að það verður að gjörbreyta um stefnu. Taumlaus frjálshyggja sem hann kallar nútíma aðgerðirhefur gengið sér til húðar.
Það verður engin þjóðarsátt um aukna misskiptingu, ofurlaun, himinhá eftirlaun ráðherra og einkavæðingu velferðarþjónustunnar.
Einkavæðing heilbrigðisþjónustunnar og slátrun Íbúðalánasjóðs í þágu bankanna er blaut tuska framan í almenning sem nú er beðinn um að herða mittisólina.
Geir Haarde ætti að lesa Reykjavíkurbréf Morgunblaðsins í dag.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:52 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.