Föstudagur, 16. maí 2008
Sparkað í Íbúðalánasjóð til að bjarga bönkunum !
Orð Geirs Haarde um breytingar á skipulagi Íbúðalánasjóðs til að bæta virkni peningamálastefnunar ,sem hluta af efnahagsaðgerðum ríkisstjórnarinnar vekur ugg og tortryggni. Sjálfstæðismenn hafa lengi viljað sjóðinn feigan.
Íbúðalánasjóður er stoð og stytta almennra íbúðareigenda og þjóðin bindur traust sitt við hann til að standa vörð um íbúðir fólks í þeim erfiðleikum sem framundan kunna að vera.Það er gott og blessað að Seðlabanki Íslands leiti bakstuðnings hjá seðlabönkum hinna Norðurlandanna og mun ekki af veita. Þótt mörgum finnist nokkuð seint í rassinn gripið hjá ríkisstjórninni í þeim efnum, en hún nýtti ekki svo kallað góðæri undanfarinna ára til að byggja upp gjaldeyrisforðann þegar gott svigrúm var til þess.
Íbúðalánasjóði fórnað
Hitt hlýtur að vekja mikla tortryggni að forsætisráðherra Geir H. Haarde skuli samtímis boða skipulagsbreytingar á Íbúðalánasjóði. Allir vita hver stefna Sjálfstæðisflokksins hefur verið í þeim efnum en þeir hafa viljað Íbúðalánasjóð feigan og ekki farið dult með. Styrinn í síðustu ríkisstjórn stóð einmitt um tilvist sjóðsins. Sjálfstæðisflokkurinn vildi afhenda viðskiptabönkunum íbúðalán fólks. Nú á að láta til skarar skríða og slátra Íbúðalánasjóði með stuðningi Samfylkingarinnar.
Frjálshyggjan ræður för
Frjálshyggjuliðið í Samfylkingunni er komið með tögl og haldir og þá telur Geir eftirleikinn auðveldan og boðar nú skipulagsbreytingar á sjóðnum sem allir vita hvað þýðir í munni ráðherra Sjálfstæðisflokksins að leggja sjóðinn niður.
Innhlaup bankanna á húsnæðismarkaðinn og aðför þeirra að Íbúðalánasjóði á sinn hlut í þeim efnahagsvanda sem þjóðin stendur nú frammi fyrir.
Bankarnir biðjist afsökunar
Það er því hótfyndin staðreynd að íslenskir viðskiptabankar munu hafa kært Íbúðalánasjóð til ESA dómstólsins, en þeir hafa viljað sjóðinn feigan.
Þessa sömu banka er nú verið að draga að landi með ríkisábyrgðum vegna græðgi þeirra og glannaskapar með fjármuni og eignir þjóðarinnar. Hvernig væru mörg heimili í landinu stödd nú ef bönkunum og Sjálfstæðisflokknum hefði tekist það ætlunarverk sitt að slátra Íbúðalánasjóði?
Bankarnir ættu að skammast sín til að afturkalla kæru sína á hendur Íbúðalánasjóði til ESA nú þegar og biðjast afsökunar á aðför sinni að sjóðnum.
Aðförina að Íbúðalánasjóði verður að stöðvaLjóst er af ummælum Geirs að nú ríður á að slá skjaldborg um Íbúðalánasjóð, að honum sé ekki fórnað til að rétta af óráðsíu viðskiptabankanna á undanförunum árum.
Það er dapurlegt að ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks skuli enn á ný vilja fórna Íbúðalánasjóði fólksins og nú með stuðningi Samfylkingarinnar.
Þessa aðför Sjálfstæðisflokksins að velferðarkerfi landsmanna verður að stöðva.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:14 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.