Laugardagur, 10. maí 2008
Dæmdir í Hæstarétti !
Hæstiréttur hefur dæmt ólögmæta sölu á hlut ríkisins í Íslenskum aðalverktökum. Sigurbjörn Þorbjörnsson lögmaður segir þetta áfellisdóm yfir framkvæmd einkavæðinganefndar á sölu á hlut ríkisins í ÍAV : Þetta snerist í sjálfu sér ekki um peninga af hálfu minna umbjóðenda, heldur um að menn vildu að leikreglur yrðu virtar og að menn yrðu ekki hafðir að fíflum.( 24 stundir, 10 maí)
Það voru æðstu menn Framsóknarflokksins sem handsstýrðu sölunni. Halldór Ásgrímsson sem sat í ráðherranefnd um einkavæðingu og sölu ríkiseigna og átti persónulega aðkomu að gjöfinni sem og Jón Sveinsson formaður einkavæðinganefndar ríkisstjórnarinnar og fulltrúi Framsóknarflokksins. Allt var það gert með vitund og vilja fjármálaráðherra Sjálfstæðisflokksins, Geirs Haarde, sem einnig átti sæti í ráðherranefndinni, enda fékk sá flokkur aðra bita í sinn hlut.
Vísvitandi svik - Geir Haarde var fjármálaráðherra
Söluverð fyrirtækisins var vísvitandi vanmetið en kaupandinn var Eignarhaldsfélag sem átti hinn hluta ÍAV og hafði komist yfir hann með yfirgangi og klíkuskap. Kaupandinn, Eignarhaldsfélag aðalverktaka kaupir hlut ríksins á 2 milljarða en ári síðar greiðir það sér 2,3 milljarða í arð! Slík dæmi eru nánast algild fyrir einkaavæðingu og græðgina á markaðnum síðustu ár. Geir Haarde var fjármálaráðherra þá og bar embættislega ábyrgð á þessum gjörðum fyrir hönd ríkissjóðs. Verður Geir lögsóttur? Mun Geir Haarde axla ábyrgð? Eða er alveg sama hvað ágengur.? Komast menn upp með allt þegar almanneigur eru annars vegar?
Dæmigert fyrir einkavæðinguna
Sala Íslenskra aðalverktaka er ekki einsdæmi. Nánast öll einkavæðing og sala ríkiseigna á undanförnum árum er brennd sömu lögleysunni.
Gjöfin og helmingaskiptin á bönkunum milli gæðinga Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks hefði að réttu átt að fara til dómsóla.
Var ekki beitt sömu brögðum þar?
Vinnubrögð sem þessi hafa gegnsýrt íslenskt þjóðfélag á undanförnum árum og þeir sem þar hafa vélað um eiga megin sök á því mikla misrétti og kjaramun sem nú ríkir í íslensku samfélagi.
Nú kalla sömu aðilar eftir biðlund og samskotum þeim til handa sem hafa hrifsað til sín eigur samfélagsins á undanförnum árum í skjóli siðspilltar ríkisstjórnar..
Græðgi og siðleysiÞað er þess græðgi og botnlaust siðleysi í viðskiptum sem var handstýrt af æðstu stjórnendum landsins sem eiga alla sök á þeim efnahagsvanda sem við nú stöndum frammi fyrir. Það kemur að skuldadögunum, en því miður verða sökudólgarnir þá komnir skjól með sitt og reikningurinn lendir sem fyrr á almenningi í landinu. Hvenær kemur að því að æðstu ráðamenn þjóðarinnar beri perónulega ábyrgð gagnvart brotum sem þeir eru dæmdir fyrir í hæstarétti?
Þingmenn VG vilja óháða rannsóknanefnd
Þingmenn Vg tóku þetta mál ítrekað upp á Alþingi og gagnrýndu gjafastefnuna harðlega. Við óskuðum eftir úttekt Ríkisendurskoðunar á sölu ÍAV sem og á bönkunum. Því miður reyndist Ríkisendurskoðun ekki valda því verkefni, sem kemur nú berlega í ljós með hæstaréttardómnum. Það hefur reynst eftirlitsstofnunum eins og Ríkisendurskoðun og Fjármáleftirliti erfitt að fóta sig í málum sem þessum þegar valdamiklir aðilar nátengdir æðstu stjórnvöldum eiga í hlut.
Fróðlegt verður að sjá hvernig stjórnvöld fylgja þessum hæstaréttardómii eftir. Nú ætti ríkisaksóknari að taka á sig rögg.
Og áfram er haldið subbuskapnumOg áfram er haldið á sömu braut. Tuga milljarða eignir á Keflavíkurflugvelli eru nú afhentar vinum og vandamönnum fjármálaráðherra án þess að lög og leikreglur séu virtar. Fyrir þinginu liggur þingsályktunartillaga um skipan óháðrar rannsóknanefndar um ráðstöfun ríkiseigna á Keflavíkurflugvelli.
Mál að linni
Einkavæðing heilbrigðiskerfisins er á fullri ferð og vinirnir bíða slefandi á tröppum stjórnarráðsins eftir nýjum gjafakortum á eigum almennings. Fátt er arðvænlegra en einkavæddir sjúkdómar fólks Nú er einkavætt með stuðningi Samfylkingarinnar.
( Dómur Hæstaréttar og einkavinavæðing ÍAV er ítarlega rakinn í 24 Stundum í dag. )
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:47 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.