Ingibjörg Sólrún og " Euróvision"

„Að taka þátt í kjöri til Öryggisráðsins er eins og að vera með í Euróvision keppni“, sagði Ingibjörg Sólrún í fréttaþætti  á Stöð 2  í kvöld.

Ekki skal ég gera lítið úr Söngvakeppninni, en  þarf ekki  sérstaka kímnigáfu til að líkja þessu tvennu saman. Væntanlega upplifir utanríkisráðherra  sig sem  söngvara í glæsiklæðum á leið inn á  "Euróvision"-sviðið, böðuð ljósum kastaranna. 

 Ég held hins vegar að almenningur vilji heldur sjá formann Samfylkingarinnar  í alþýðuklæðum takst á  við landsmálin heimafyrir með þjóðinni.

Í þotuflugi um heiminn !

 Ætli flestir séu ekki búnir að fá nóg af „Euróvision“ -ferðum utanríkisráðherra  um heiminn undanfarið.

 Rök annarra ráðherra og einnig  forsetans  fyrir endalausum ferðum sínum  um heiminn er einmitt  þátttaka í þessari  „Euróvision-keppni“   utanríkisráðherra. Gildir þar einu hvort ferðast er með einkaþotum eða í  almennu farþegaflugi, allt hlýtur þetta að kosta sitt.

Gæti það verið að stefna ríkisstjórnarinnar í utanríkismálum mótist  fyrst og fremst af  smjaðri fyrir ríkjum hér og hvar í heiminum í þágu keppninnar, einkum einræðisríkjum sem hanga aftan í Bandaríkjunum og fylgja  yfirgangi þeirra í heiminum?

Íraksstríðið var engin“Euróvision -keppni“

Þjóðum heims er vel kunnugt um stuðning og þátttöku Íslands við innrásina í Írak.  En hún hefur  verið fordæmd af fjölda ríkja í samfélagi þjóðanna. Utanríkisráðherrann, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, hefur hvorki afturkallað þann stuðning né beðið írösku þjóðina og alþjóðasamfélagið afsökunar eins og Samfylkingin lofaði fyrir kosningar.

Ég held að íraska þjóðin hafi hvorki upplifað innrásina né  mannfórnirnar sem undanfara í "Euróvision"-keppni.

Meira að segja Sarkozy, forsætisráðherra Frakka hefur hætt stuðningi við Blair sem fyrsta forseta Evrópusambandsins.  Ástæðan er þátttaka Blairs í herförinni til Íraks. 

Spurning er hvort ástæða sé til  að endurskoða þátttöku íslensku þjóðarinnar í „Euróvision-keppni“ utanríkisráðherra Samfylkingarinnar áður en meiru er kostað til ?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband