Þjóðarsátt - um hvað ? ?

Forystumenn ríkisstjórnarflokkanna hafa sent út neyðarkall  um þjóðarsamstöðu gegn óðaverðbólgu.

Geir Haarde biður láglaunafólk, elli- og örorkulífeyrisþega að minnka við sig, sýna þolinmæði og spara, kaupa bensín aðeins í neyð!

Um hvað eru þau Ingibjörg og Geir að tala?

Er verið að kalla eftir þjóðarsátt um misskiptinguna í samfélaginu. Um ofurlaun og fríðindi sjálftökuliðsins sem gengið hefur í eigur þjóðarinnar á undanförnum árum?

Er verið að kalla eftir samstöðu um niðurskurð á fjármagni til heilbrigðismála og einkavæðingu sjúkrahúsa  og hækkun sjúklingaskatta?

Er verið að kalla eftir samstöðu um svo lág laun  til umönnunarstétta að sjúkrahús og elliheimili, skólar og leikskólar fást ekki mönnuð vegna lélegra kjara starfsmanna?

Er verið að kalla eftir samstöðu um að lægstu laun dugi ekki fyrir lágmarksframfærslu.

Er verið að kalla eftir samstöðu um að kjör margra aldraðra og öryrkja eru  langt undir fátæktarmörkum?

Er verið að kalla eftir samstöðu um að galopna fyrir innflutning á hráu kjöti  og stefna þar með matvælaöryggi þjóðarinnar í uppnám og  framtíð landbúnaðar og matvælavinnslu í tvísýnu.

Er verið að kalla eftir samsstöðu um niðurskurð  á fé til  almennar löggæslu og tollskoðunar en verja í staðinn  milljörðum króna til nýrrar hermálastofnunar og vegna æfinga erlendra herja hér á landi

Er verið að kalla eftir samstöðu um endalaust ráp og þotuæði  æðstu manna þjóðarinnar um heiminn með ærnum tilkostnaði?

Ráðherrar Samfylkingarinnar mæra stefnu Sjálfstæðisflokksins.

Ég er ekki viss um að kjósendur Samfylkingarinnar séu því sammála.      

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband