Neyðarkall frá ALCOA á Reyðarfirði ?

 

Dag eftir dag, viku eftir viku, mánuð eftir mánuð birtast auglýsingar í  öllum dagblöðum, sjónvarpi og úrvarpi - ákall frá ALCOA  á Reyðarfirði   um fleira starfsfólk.  

Hástemmd lýsingarorð  eru notuð : „öflugasti vinnustaður heims á sínu sviði“,  „blómlegur hópur starfsfólks,   traust og spennandi atvinnutækiflæri“,  „ launin eru góð,  heilsuvernd, frítt fæði, akstur til og frá vinnu“ .  Osfrv. 

Allt er þetta tíundað í yfirspenntum tón, myndskreytt og leikið . 

Í hina röndina gumar fyrirtækið af því að fleiri hundruð manns sæki um þau fáu störf sem eru í boði.

Væri það satt þyrfti varla að eyða milljónum á viku í auglýsingar eftir starfsfólki, mánuð eftir mánuð.

Orðfarið í auglýsingunum líkist meira neyðarkalli,  hjálp! hjálp!  

Hvað er að hjá ALCOA á Reyðarfirði ?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband