Samstaða hjúkrunarfræðinganna aðdáunarverð.

 

Með festu, hógværð og einstæðri samstöðu tókst hjúkrunarfræðingum á svæfinga- og skurðdeild Landspítalans að brjóta á bak aftur hroka heilbrigðisráðherra og valdbeitingu stjórnenda spítalans.

Hér áttu hlut að máli hjúkrunarfræðingar, m.a. konur með áratuga starfstíma að baki, sem átti að brjóta á réttindi og lítilsvirða störf þeirra.

Það dylst engum hversu freklega þeim hafði verið misboðið er þær reyndust reiðubúnar með uppsögn sinni að fórna persónulegum áunnum réttindum fyrir sannfæringu sína og verja virðingu fyrir starfinu.  

Þjóðinni er létt í bili hvað þennan þátt varðar, þökk sé hjúkrunarfræðingum.

Með hátíðarkveðjum á baráttudegi verkafólks, 1. maí.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband