Samfylkingin "gerir sama gagn“ !

  Geir Haarde fagnaði því sérstaklega að fá Samfylkinguna í ríkisstjórn. Þá væri hægt að setja einkavæðingu  heilbrigðiskerfisins á fullt.   Samfylkingin er í fangi  Geirs  Haarde eins og mállaus tuskubrúða sem „gerir sama gagn“.  Byrjað er á Landspítalanum.  Um hundrað hjúkrunarfræðingar og fimmtíu geislafræðingar ganga út 1. maí.  Það er ekki ný tilkomið. Hjúkrunarfræðingarnir sem komu fram í kastljósi í kvöld greindu frá því á hógværan hátt hvernig að starfskilyrðum þeirra hefði verið þrengt á undanförnum mánuðum og nú gætu þeir ekki meir. Þær vildu samt helst  hvergi  annarsstaðar vinna.

Að skapa glundroða

Stjórnendur  Landsspítalans  hefðu stillt þeim upp við vegg með afarkostum og beitt maður á mann aðferðinni til að sundra hópnum . Einum starfsmanni var sagt þetta og öðrum hitt.-  Þekkt aðferð stjórnenda til að reyna að skapa ringulreið.

Landspítalinn einkavæddur

Formaður tilsjónarnefndar ráðherra með Landsspítalanum , Vilhjálmur Egilsson  er sá sem ræður för. Hann fór ekki dult með áform ríkisstjórnarinnar í fréttum fyrir skömmu. Landspítalanum skyldi breytt í hlutafélag og starfsemin einkavædd. Það var því kaldhæðnislegt að heyra einn  af yfirmönnum spítalans tala um í kvöld að þetta snerist um innleiðingu evróputilskipunar!

 

Vantraust á heilbrigðisráðherrann 

Er að furða þótt hjúkrunarfræðingar lýsi vantrausti á stjórnendur Landsspítalans.  Það er verið að lýsa vantrausti á tilsjónarnefnd heilbrigðisráðherra. Það er verið að lýsa vantrausti á heilbrigðisráðherrann  og einkvæðingarstefnu ríkisstjórnarinnar sem var svo einkar gott að fá Samfylkinguna með í að hrinda í framkvæmd.  

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband