Áskorun til samgönguráðherra vegna Breiðafjarðarferjunnar Baldurs!

„Félag Vinstri Grænna í Stykkishólmi skorar á Samgönguráðherra að ganga nú þegar til samninga við Sæferðir vegna ferða Breiðafjarðarferjunnar Baldurs yfir Breiðafjörð milli Stykkishólms og Brjánslækjar. Markmiðið þarf að vera að tryggja áfram og til lengri tíma óbreyttan ferðafjölda og þjónustu ferjunnar yfir fjörðinn . Ferðirnar eru gríðarlega mikilvæg samgönguæð fyrir vöru- og fólksflutninga milli Vestfjarða og Snæfellsnes.  Við bendum á að samstarf íbúa á sunnanverðum Vestfjörðum við Fjölbrautaskóla Snæfellinga byggir á þessum ferðum.  Að óbreyttu  fer  ferðum að fækka um mánaðarmótin maí/ júní  frá því sem verið hefur og falla  alveg niður frá árinu  2009  a.m.k  að vetrinum,  er samningur um siglingarnar rennur út. Ljóst er að grípa þarf til aðgerða strax til að tryggja óbreytta þjónustu“.  

Sviknar vegaframkvæmdir á Vestfjörðum

Frá árinu 2001 hefur verið í gildi samningur milli Sæferða ehf í Stykkishólmi og ríkisins um lágmarksfjölda ferða yfir Breiðafjörð milli Stykkishólms og Brjánslækjar. Sá samningur átti að renna út þegar nýr vegur með bundnu slitlagi væri kominn  fyrir Breiðafjörð  á Barðaströnd.Í tíð Sturlu Böðvarssonar  samgönguráðherra var umræddri vegagerð fyrir Breiðafjörð til Barðastrandar seinkað  æ ofan æ eins og kunnugt er, m.a.  til að hamla gegn þenslu á suðvesturhorninu !  Því miður sér ekki fyrir endann á því hvenær  vegagerð um þessa leið verður lokið.

Ferjan áfram þótt vegurinn komi

Samningur fyrrverandi ríkisstjórnar við Sæferðir um ferðir  Baldurs hefur verið tvíframlengdur vegna  seinkunar vegaframkvæmdanna . Nú síðast 2005. Þar  er gert ráð fyrir að ferðum  milli Stykkishólms og Brjánslækjar fækki á árinu 2008 og samningurinn  falli niður 2009.Mikilvægt er að framkvæmdum við veginn fyrir Breiðafjörð verði hraðað, en burtséð frá því verða ferjusiglingarnar yfir Breiðafjörð  ómissandi í flutningum fólks og vara milli svæðanna. 

Orð og gjörðir ríkisstjórnar stangast á

Það er svo makalaust hvernig þessi ríkisstjórn talar og framkvæmir í kross. Með annarri hendinni er veifað mótvægisaðgerðum og sértæku byggðaátaki með hinni er svo skorin niður þjónustan við byggðirnar. Má þár nefna niðurskurð á póstþjónustu  Vestfirðinga og nú fækkun ferða Breiðafjarðarferjunnar  Baldurs.  Er nema von að fólk átti sig ekki alltaf á  þegar stangast svo á orð og gjörðir.

 VG beitir sér í málinu  á Alþingi

Ég hef þegar tekið ferjumálið upp á Alþingi og við þingmenn Vinstri grænna munum  leggja það til við endurskoðun samgönguáætlunar í vor að samgönguráðherra verð gert að ganga þegar í stað  til samninga við Sæferðir ehf  um áframahaldandi ferjusiglingar  yfir fjörðinn.  Vonumst við til að fá stuðning annarra þingmanna við þetta brýna mál.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband