Sunnudagur, 20. apríl 2008
Einkavæðing Landspítalans á fulla ferð !
Sjálfstæðisflokkurinn fékk heilbrigðisráðuneytið til að geta einkavætt sjúkrahúsin með stuðningi Samfylkingarinnar. Nú skal einkavæða Landspítalann.
Aðferðafræðin er kunn: Fjármagnssvelti, skapa óróa meðal starfsfólks, reyna að koma á deilum milli einstrakra starfsmanna hópa, tefla öllu starfi í óvissu. Framkvæmdastjórinn er rekinn. Enginn er ráðinn í starfið. Talað í austur, talað í vestur.
Starfsmenn króaðir af út í horni og rætt við þá einslega!
Komið á deilum um hver skuli ráða.- Allt fer þetta fram eftir kokkabókum.
-Hið versta verður þá betra en óvissan.
Sjúkdómar fólks eru örugg tekjulind fyrir "fjárfesta og gróðaöflin"
Vilhjálmur Egilsson, formaður tilsjónarnefndar heilbrigðisráðherra og útsendari hans sem sérlegur friðarspillir á Landspítalanum, kveður formlega upp úr um einkavæðingu Landspítalans á mbl.is í dag.
Er það ekki hlýleg kveðja til um hundrað hjúkrunarfræðinga sem munu ganga út 1. maí nk. vegna skipulegrar aðfarar heilbrigðisráðherra Sjálfstæðisflokksins að Landspítalanum?
Var það að furða þótt Geir H. Haarde væri ánægður með að fá Samfylkinguna í ríkisstjórn því þá væri hægt að setja heilbrigðiskerfi landsmanna í uppnám og einkavæða það svo.
Ráðherralið Samfylkingarinnar er stolt af hlutskipti sínu sem hækjur í aðförinni að heilbrigðiskerfi landsmanna.
En eru kjósendur Samfylkingarinnar jafn stoltir af framgöngu ráðherranna sinna?
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:43 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.