Neytendur og bændur eiga samleið !

  Ísland býr við meira öryggi í hollustu kjötvara og heilbrigði búfjár en önnur lönd í Evrópu. 

 Með samstilltu varnarátaki,  brennd af biturri reynslu hefur okkur tekist að verja íslenska búfjárstofna  gegn nýjum sjúkdómum sem reglulega herja á búfé erlendis. 

Er skemmst að minnast gin- og klaufaveiki faraldurs sem herjaði  á Bretland nýverið, kúariðu og  Kreusfeldt Jakops sjúkdóminn sem gengið getur í fólk. Höfum við hingað til fylgt fordæmi matvælaframleiðslu landa eins og Ástralíu og Nýja´- Sjálands með góðum árangri en þau leyfa ekki innflutning á hráu kjöti. 

 Með því að heimila óheftan innflutning af hráum kjötvörum verðum við hluti af kjötmarkaði Evrópusambandsins og þeirra vara sem berast þangað annarsstaðar frá úr heiminum. Þær sjúkdóma- og sóttvarnir sem við  höfum byggt upp  varðandi kjötvörur falla að mestu niður.

Ýmsir búfjársjúkdómar  eru  landlægir í erlendis og þar hefur búféð aðlagað sig sumum þeirra í aldanna rás. Hér hefur búféð verið einangrað og er því mótstöðuminna fyrir framandi sjúkdómum.

Skemmst er  að minnast mæðiveikinnar sem lagði stóran hluta sauðfjárstofns landsmanna að velli um miðja síðustu öld. Margir þessara sjúkdóma geta borist til landsins með hráu kjöti.

 Tilslökun á sjúkdómavörnum,  eins og óheftur innflutningur á hráu kjöti er, eykur hættuna á að nýir skaðlegir  sjúkdómar berist í íslenskt búfé með ófyrisjáanlegum afleiðingum.

Heilbrigði íslenskra búfjárstofna  og hollusta innlendra kjötvara  er auðlind sem er þjóðinni dýrmæt til framtíðar og á ekki að leika sér með eða fórna að þarflausu.

 Ályktun Vinstri  grænna í Skagafjarðar- og Húnavatnssýslum:

Í tilefni af áformum stjórnvalda sendu félög Vinstri grænna á Norðurlandi vestra frá sér eftirfarandi ályktun:

„Félög Vinstri grænna í Skagafirði og Húnavatnssýslum skora á Alþingi að stöðva frumvarp ríkisstjórnarinnar sem galopnar á innflutning á fersku kjöti og kjötvörum til landsins.

Með frumvarpinu er ekki einungis vegið að einstökum atvinnugreinum heldur afkomu heilu landshlutanna ásamt því að sjúkdómavörnum og öryggi neytenda er teflt í tvísýnu. 

Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins, sem jafnframt fór með ráðuneyti landbúnaðarmála gaf vilyrði fyrir óheftum innflutningi á hráu kjöti og kjötvörum.

Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingarinnar hyggst nú fullkomna það verk með lagasetningu. Sem fyrr er um algert sinnuleysi að ræða gagnvart séríslenskum hagsmunum og möguleikum okkar að fá tillit til þeirra tekið í samningum og við lagasetningu. 

Enginn landshluti á eins mikið undir landbúnaði og kjötvinnslu eins og Skagafjörður og Húnavatnssýslur.

 Með frumvarpinu er ráðist gegn afkomu heils landshluta. Því er skorað á ríkisstjórnina að draga frumvarpið til baka og taka þessi málefni til vandaðri meðferðar“. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband