Í einkaþotu á herráðsfund Nató

 Formenn stjórnarflokkanna ásamt fylgdarliði  eru  á förum með einkaþotu á fund herráðs Nató.

Almenningur hefur verið beðinn um  að herða sultarólina og sýna „ þotuliðinu“  samúð í erfiðleikunum.

Rætt er um að efna til samskota fyrir liðið enda hafa þeir farið með  gróða undanfarinna ára að stórum hluta úr landi,  þangað sem ekki þarf að borga af skatta og nú á íslenskur almenningur að borga brúsann þegar harðnar í ári.

Við  svo alvarlegar aðstæður sem nú eru uppi í efnahagsmálum þjóðarinnar  velta margir fyrir sér veruleikafirringu ríkisstjórnarinnar.

Er það gott fordæmi að ríkisstjórnin verji milljónum króna í að fara í hópferð á herráðsfund hjá Nato, allt á kostnað  almennings?  

Væru peningarnir ekki betur komnir í löggæslu og tollvörslu á  Suðurnesjum og Keflavíkurflugvelli  sem nú er í uppnámi vegna fjárskorts?  

Stendur það ekki okkur nær að berjast gegn innflutningi fíkniefna og ofbeldi þeim tengdum en monta sig á fundum hernaðarbandalagsins Nato ?  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband