Laugardagur, 21. júní 2025
Sykurhús Hans og Grétu
Trúverðugleiki stjórnar Vg og Samfylkingar 2009 fór með ESB umsókninni
Eftir að formennirnir í ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur 2009 gerðu aðild að ESB sem sitt aðalmál var trúverðugleikinn brostinn.
Ég sat í þeirri ríkisstjórn og var mjög andvigur ESB umsókninni
Enda gekk sú umsókn þvert á stefnu Vg og loforð.
Trúverðugleikinn brast.
Hvorugt formanna flokkanna vissu hvað fólgst í ESB umsókn
Ég kynntist því sem ráðherra að hvorugt formannna Vg eða Samfylkingar virtust vita á þeim tímapúnkti í hverju unsókn að ESB væri fólgin eða hver ferillin væri í slíkri umsókn.
Heldu þau í barnaskap að Ísland réði ferðinni og gætu valið sér einstaka bita úr köku ESB.
Skilyrði ESB liggja öll fyrir. Það er annað hvort allt eða ekkert.
Umsóknin var skilyrðislaus. Enda tekur ESB ekki við öðru.
Hægt er að semja um tímabundna fresti frá innleiðingu á einstaka þáttum
En engar varanlegar undanþágur eru í boði enda þyrftu þá hvert einstakt ríki að samþykkja það fyrir sig sem er ekki í boði í aðlögunarferlinu.
Að lenda í díkinu
Því miður óttast ég að núverandi forsætisráðherra sé að lenda í sama díkinu og Jóhanna Sigurðardóttir 2009.
Kristrún einmitt lofaði bæði í eigin formannslag og fyrir kosningar því að ESB umsókn yrði ekki aðal mál á dagskrá næstu ríkisstjórnar undir sinni forystu.
Hún ætlaði sér ekki að kljúfa þjóðina með sama hætti og Jóhönnustjórnin gerði.
Að setja "Bókun 35" um framsal á dómsvaldi til EES/ ESB sem fyrsta mál ríkisstjórnar var mikill afleikur.
Með einn ríkisstjórflokkinn yfirlýst alfarið á móti.
Og strá síðan salti í einingu þjóðarinnar með óábyrgu tali um þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB
Fyrst þarf að breyta stjórnarskrá sem heimilar framsal til ESB
Það verður ekki sótt um aðild að ESB nema að breyta fyrst stjórnarskránni.
Þessu gerði þó Jóhanna Sigurðardóttir og hennar ráðgjafar sér grein fyrir 2009
Þess vegna var lögð þung áhersla á að fara í stjórnarskrárbreytingu strax vorið 2009.
Stjórnarskrár breyting sem heimilar slíkt framsal til erlends ríkjasambands var algjör forsenda ESB umsóknar.
Sama gildir um að innleiða ESB lög og reglur í bútum eins og framsal dómsvalds með " bókun 35"
Virðing fyrir stjórnarskráinni er helgidómur þjóðarinnar
Með þessari ofuráherslu á ESB umsókn og " Bókun 35" verða nánast öll mál ríkisstjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins dæmd til þess að verða skönnuð varðandi fullveldisframsal og liðir í ESB umsókn.
Forsætisráðherra þarf strax að taka í taumana, stöðva umræðu um fullveldisframsal, hugsanleg brot á stjórnarskrá og ESB umsókn ef hún ætlar að njóta áfram þess trúverðugleika sem hún svo örugg lagði upp með bæði í formannssslagnum og í síðustu alþingiskosningum
Sykurhús Hans og Grétu
Að byggja traust sitt á dómurum eða skriffinnum sem hafa tútnað út og belgt kviðinn við veisluborðin og makindin í Brussel er þjóðinni ekki farsælt
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:21 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning