EES samningurinn hefði aldrei verið samþykktur á sínum tíma með bókun 35 innanborðs.
Stjórnarskrá hverrar þjóðar er henni helgidómur
Hvort sem einhverjum líkar betur eða verr þá ber þingmönnum að virða stjórnarskrána og láta hana ætíð njóta vafans.
Mál sem reyna á þol stjórnarskrárinnar má bera undir þjóðina í þjóðaratkvæðgreiðslum eða reyna að fá stjórnarskránni breytt á lýðræðislegan hátt
Reyndar virðist svo sem ráðandi ríkisstjórn á hverjum tíma sé andvíg þjóðaratkvæðagreiðslum og beri takmarkaða virðingu fyrir sjórnarskrá en horfi fyrst og fremst á eigið meirihlutavald
Haldreipi þjóðarinnar er því Forsetinn sem getur neitað að skrifa undir lög og vísað þeim til þjóðarinnar.
Aðeins einn forseti hefur haft dug í sér til þess en aðrir runnið á rassinn og gugnað þrátt fyrir fjölmennar áskoranair þar um
Þriðjudaginn 12 janúar 1993 greiddi alþingi atkvæði um hvort gerast ætti aðili "Samningi um Evrópska Efnahagsvæðisins"
Samingurinn er fyrst og fremst um gagnkvæm viðskifti, rettindi og skyldur á þeim sviðum og frjálsa för fólks á milli landa
Samningsðali þá var Efnahagsbandalagið sem var fyrst og fremst tollabandalag.
Dregið er í efa að nokkurn tíma hafi komið til slíks samnings ef núverandi Evrópusamband hefði verið samningsaðilinn.
Svo gjörbreytt er staðan á þeim vettvangi
Evrópusambandið er ríkjasamband sem stefnir að einu ríki með sameiginleg fjármál, lögjafarvald, hermál og auðlindamál.
Samband sem miðstýrt og vill drottna yfir öðrum löndum
Hart tekist á Alþingi 1993
Umræður voru mjög harðar á Alþingi og við atkvæðgreiðsluna um frávísunartilögu for svo að hún var feldd með 33 atklvæðum gegn 30
Mjög margir töldu að EES samningurinn stæðist ekki stjórnarskrá Íslands,
Var í kjölfarið gengist fyrir undirskriftum að skora á forsetann að staðfesta ekki lögin.
Því miður brást forsetinn þjóðinni í það sinn
Ein fjölmennasta undirskrifta söfnun lýðveldisins skoraði á forsetann að hafna lögunum og senda til þjóðarinnar
Því miður brást forsetinn því ákalli þjóðarinnar,
Nokkuð ljóst er að hefði bókun 35 með framsali á yfirlögjafarvaldi frá Íslenskum dómsótólum til EES þá hefði EES samningurinn aldrei verið samþykktur 1993,
Treyst á forsetann
Fari svo illa að Alþingi samþykki að ganga á svig við stjórnarskrána og samþykki " Bókun 35" er ein leið til
Við höfum átt forseta sem stóð með þjóðinni á örlagatímum og rétti hennar til þess að tjá skoðun sína í umdeildu máli frá ríkisstjórn
Verði bókun 35 samþykkt Þá reynir á forsetann og trúnað hans gagnvart þjóðinni
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.