Gleðilegan sjómannadag

Föðurland vort hálft er hafið kvað trúarskáldið Jón Magnússon "Bláskógaskáld" f. 1896 d. 1944, 

1 "Líknargjafinn þjáðra þjóða,
þú sem kyrrir vind og sjó,
ættjörð vor í ystu höfum
undir þinni miskunn bjó.
Vertu með oss, vaktu hjá oss,
veittu styrk og hugarró.
Þegar boðinn heljar hækkar,
Herra, lægðu vind og sjó.

2 Föðurland vort hálft er hafið,
helgað þúsund feðra dáð.
Þangað lífsbjörg þjóðin sótti,
þar mun verða stríðið háð.
Yfir logn og banabylgju
bjarmi skín af Drottins náð.
Föðurland vort hálft er hafið,
hetjulífi' og dauða skráð".

Sjálfstæði og fullveldi þjóðarinnar 

Baráttan fer fram a hafinu - minnumst landhelgisstríðsins við Ísland 

Fullt forræði yfir auðlindum hafsins umhverfis Ísland  munu áfram ráða fullveldi þjóðarinnar.

 Stríðið gegn ásælni  Erlendra afla mun áfram verða tekið í hafinu,um fiskimiðin, auðlindirnar umhverfis Ísland

Gleðilega hátíð


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband