Hvers vegna var lögreglustjórinn á Suðurnesjum rekinn

Var það að kröfu  EES/ ESB  og hinnar herskáu utanríkisstefnu ríkisstjórnarinnar.

Af reynslu minni úr stjórnsýslunni og sem ráðherra er það mjög sérstætt að ráðuneytistjóri sendi öðrum yfirmanni skammir og aðfinnslur  í bréfi eða  tölvupósti  eins og raunin er  með umrædda atburðarrás.

Sem síðan er fylgt eftir af ráðherra með uppsögn sem er útskýrð  rökstudd með "boðuðum breyttum áherslum " í utanríkis- og varnarmálum.

Les innganga og hernaðaraðild að ESB

"Hreinsanir"- þekktar aðferðir "Djúpríkisins" 

Hlutverk lögreglustjórans var einmitt að hafa yfirumsjón með vörslu á landasmærum Íslands.

 Þar hafði lögreglustjórinn bent á að skerpa þyrfti á reglum  við skráningu og umferð farþega til landsins til þess að hægt væri að sinna landamæravörslu. 

Hinar almennu reglur Schengen væru of veikar og takmörkuðu rétt Íslendinga og lögregluembættisins til þess að framfylgja landamæraeftirliti sem þó væri krafist.

Schengen er ein af "líflínum" ESB sem t.d. Bretar forðuðu sér undan

Ráðuneytisstjórinn og ráðherrann.

Sem ráðherra hefði ég ekki liðið að ráðueytisstjóri sendi í eigin nafni  slíkan tölvupóst vitandi að ráðherra bæri ábyrgð á slíkum skrifum

Það er enn aumlegar ef ráðherra hefur falið ráðuneytisstjóra  að gera slíkt  til þess síðan að hafa ásstæði til þess að víkja honum úr sterfi

Gamlir taktar frá ESB umsókninni 2009 rifjast nú upp 

Varla er það tilviljun að á sama tíma er utanríkisráðherra Íslands að skrifa undir samkomulag við forystu ESB ríkja um "hernaðarsamstarf" milli Íslands og ESB og aukna þattöku í vopvæðingu Evrópu við Ísland

Í hvers umboði er Ísland að hervæðast inn í Evrópusambandið?

Hreinsanir í stjórnsýslunni að kröfu ESB

Þekktar aðferðir "Djúpríkisins" sem Styrmir Gunnarsson heitinn kallaði svo. 

 

 

 


mbl.is Skammaði lögreglustjóra í tölvupósti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla

Bæta við athugasemd

Hver er summan af níu og tólf?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband