Þriðjudagur, 1. apríl 2025
Munu dómarar hjá ESB ákveða hver má bjóða fram á Íslandi
Nú þegar dómari í Frakklandi hefur dæmt Le Pen einn öflugasta stjórnmálamann Frakklands frá að mega bjóða sig fram sem forseta rifjast upp fyrirsögn frá 2017
" Marine LePen, forsetaframbjóðandi Front National í Frakklandi, hefur heitið því að berjast fyrir úrsögn úr Evrópusambandinu ef það afsalar ekki stjórn á landamærunum, löggjöf og peningamálum til Frakka"
Hvað sem ýmsum finnst um pólitískar áherslur og stefnumál flokksins kom fram að Le Pen hafði á engan hátt hagnast persónulega eða brotið af sér sem einstaklingur.
En peningar frá ESB voru ekki nýttir fyrir flokk hennar á "réttan hátt".
Mér var nú hugsað til allra "brúnu umslaganna" frá áróðursdeild ESB í kringum umsókn Íslands 2009.
Í Frakklandi "Vöggu lýðræðis" !
Þarna er stjórnmálamaður sem er búinn að vera að sækja í sig veðrið og auka fylgi gríðarlega.
Þjóðfylkingin er orðin með stærstu flokkunum í Frakklandi. Og hún hefur tilkynnt það að hún ætli að bjóða sig fram til forseta í Frakklandi árið 2027.
En þessi sakfelling þýðir auðvitað það að Marine Le Pen er ekki heimilt lengur að bjóða sig fram til forseta. segir frosti Logason á Ejunni í dag,
Þrískipting valds og ábyrgðar í lýðræðisríki
Það að dómari geti brotist svona inn í löggafarsvið lýðræðisins er óhugnalegt.
Þrískipting valds og ábyrgðar eru hornsteinar í lýðræðisþjóðfélagi.
"Bókun 35" um framsal á valdi til dómstóla EES/ ESB er til umfjöllunar á alþingi.
Þar er einmitt verið að krefjast þess að Ísland innleiði tilskipun sem gefi EES/ ESB löggjöf og reglur forgang ef þær greinir á við íslensk lög.
Framsal á fullveldi og sjálfsákvörðunar rétti Íslands er þar í húfi.
Og það " merkilega" er að til eru jafnvel íslenskir "dómarar" og "lögspekingar" sem nánast krefjast þess að Alþingi setji "bókun 35" inn í íslensk lög.
Dómaraklúbbur EES/ ESB lætur ekki að sér hæða í þeim efnum
Gætum að okkar fullveldi og lýðræði
![]() |
Le Pen setur Evrópusambandinu afarkosti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 2.4.2025 kl. 15:31 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning