Miđvikudagur, 14. febrúar 2024
Háskólinn á Akureyri- Söguágrip
Ţá var bođiđ upp á nám í tveimur deildum: Heilbrigđisdeild og Rekstradeild. Fyrsti rektor skólans var Haraldur Bessason.
Formlegt upphaf Háskólans á Akureyri má rekja til ársins 1982:
Forsaga og ađdragandi Háskólans á Akureyri.
Í maí 1982 skipađi Ingvar Gíslason, ţáverandi menntamálaráđherra og ţingmađur Norđurlandskjördćmis eystra, nefnd til ţess ađ gera tillögur um hvernig vinna mćtti ađ ţví "ađ efla Akureyri sem miđstöđ mennta og vísinda utan höfuđborgarinnar".
Ingvar var menntamálaráđherra í ríkisstjórn Gunnars Thoroddsen 1980- 1983,
Öflugir Norđlendingar
En Norđlendingar voru mjög sterkir í ríkisstjórn Gunnars Thoroddsen. Auk Ingvars Gíslasonar voru Pálmi Jónsson á Akri A- Hún landbúnađarráđherra, Ragnar Arnalds Varmahlíđ, fjármálaráđherra, Steingrímur Hermannsson, fađir hans Skagfirđingur, Ólafur Jóhannesson Skagfirđingur, auk landsbyggđarţingmannanna Friđjóns Ţórđarsonar, Dalamanns og Hjörleifs Guttormssonar frá Hallormstađ
Stefnan var mörkuđ fyrir Háskólann á Akureyri og varđ ekki stöđvuđ.
Og áfram var unniđ ađ stofnun háskólamenntunar á Akureyri ţótt ýmis ljón vćru dregin upp.
Heimamenn á Akureyri og Norđurlandi knúđu á og höfđu frumkvćđiđ en einnig störfuđu áfram nefndir á vegum alţingis og ráđherra:
"Áhugi á framgangi ţessa máls hefur veriđ mikill á Norđurlandi. Má m.a. geta ráđstefnu sem Fjórđungssamband Norđlendinga efndi til í júní 1985.
Sérstök háskólanefnd á vegum Akureyrarbćjar skilađi ítarlegu áliti í febrúar 1987."
"Stofnun Háskóla á Akureyri" eins og segir í greinargerđ međ frumvarpinu.
Ţurfti ađ svara gagnrýni frá samfélagi Háskóla Íslands
"Hlutverk Háskólans á Akureyri verđur annađ fremur en ađ standa í beinni samkeppni viđ Háskóla Íslands um námsframbođ
og rannsóknir.
Ekki er heldur gert ráđ fyrir ađ hann verđi útibú frá Háskóla Íslands.
Verđur ţví strax í upphafi ađ marka honum međ lögum ţann vettvang, ađ hann geti ţjónađ hlutverki sínu sem sjálfstćđ stofnun sem bjóđi upp á nýjar námsleiđir er séu í samrćmi viđ ţarfir íslensks ţjóđfélags hverju sinni.
Eđlilegt er ađ tekiđ sé tillit til atvinnuhátta í nćsta nágrenni skólans ţegar fjallađ er um
hlutverk hans."
Pólitísk ákvörđun á Alţingi
Stofnun Háskólans á Ákureyri var pólitísk ákvörđun tekin af alţingi fyrir ţrýsting heimamanna og ţingmanna ţeirra.
Enda lögđ áhersla á tengingu skólans viđ heimslóđ ţótt hann vćri opinn á landsvísu.: Í lögum skólans stóđ m.a.:
Í Háskólanefnd ( Stjórn) skulu m.a.
"Tveir fulltrúar tilnefndir til fjögurra ára.
Annar fulltrúinn og varamađur hans eru tilnefndir af bćjarstjórn Akureyrar og hinn fulltrúinn ásamt varamanni af heildarsamtökum sveitarfélaga á Norđurlandi".
Örugglega var ţessi sterka tenging skólans viđ heimaslóđ eitt mikilvćgt lífakkeri skólans nćstu árin.
Dugnađur Haralds Bessasonar rektors
Ţrautseigja og kraftur fyrsta rektorsins Haralds Bessasonar, starfsfólks og nemenda átti stóran ţátt í ađ fleyta háskólanum yfir fyrstu árin.
Strax í upphafi komu efasemdar raddir einkum frá háskólasamfélaginu og "kerfinu" sem fyrir var í Reykjavík.
- Ađ kćmi nýr háskóli sem í hugum ýmsra átti bara ađ vera einn- Háskóli Íslands- Háskólagráđur myndu lćkka í verđi,
- ađ vćri sérkennilegt ađ íslenskur háskóli vćri međ eigin stađarnafni viđ hliđ Háskóla Íslands.
- Ađ Háskóli kenndur viđ Akureyri sem stađ, fćli í sér ţrengingu viđ ímynd skólans útáviđ.
Vildu margir ađ skólinn vćri stofnađur sem deild - útibú frá Háskóla Íslands og bćri nafn Háskóla Íslands.
En sem betur fer fyrir Háskólann á Akureyri tókst honum ađ standa á sínu, dafnađ og vaxiđ ađ virđingu og metnađi á eigin forsendum.
Ég var á ţessum árum skólastjóri á Hólum í Hjaltadal og fylgdist vel međ ţessari umrćđu og baráttu Akureyringa og annarra Norđlendinga sem var á köflum hörđ og tvinnađist inn í baráttuna fyrir Hólum í Hjaltadal
Ţví miđur var lögum um háskóla breytt síđar og nú á Bćjarstjórn Akureyrar eđa Samtök sveitarfélaga á svćđinu ekki lengur fulltrúa í stjórn skólans.
Slitiđ var illu heilli á ţá formlegu tengingu viđ grasótar samtök heimafyrir međ samrćmdum lögum um opinbera háskóla. Sama var reyndar einnig gert viđ Hólaskóla ţegar hann féll undir Háskólalögin og var fćrđur til Menntamálaráđuneytis sem var miđur
Óđagot eđa gamall kerfis ásetningur
Milli línanna virđist umrćđan nú vera komin aftur á stigiđ milli 1985 og 1990.
Háskólinn á Akureyri vćri of lítill til ţess ađ standast í alţjóđlegri samkeppni
- Ađ stađtengja nafniđ Háskólinn á Akureyri ţrengdi ađ ímyndinni og háskóla hugtakinu, "Universitatis" eins og sagt var ţá
Og ţess vegna ţurfi ađ losna viđ stađarnafniđ eins og var ein af kröfunum ţá í ađdraganda ađ stofnun skólans
Síđan er reyndar Háskólinn í Reykjavík og fleiri komnir og ţykja ţrengja ađ " Háskóla Íslands" hugtakinu.
Framtíđ Landsbyggđar háskólanna undir
Sama umrćđan er uppi um Háskólann á Hólum í Hjaltadal: ađ fćra hann undir "flaggskip" Háskóla Íslands.
Ţađ voru einmitt hliđstćđ öfl innan menntamálakerfisins á sínum tíma sem voru andvíg endurreisn Hólaskóla 1982 og töldu ađ afnema ćtti alla sérskóla, en fćra allt framhaldsnám inn í Fjölbrautarskóla og síđan í Háskóla Íslands.
Ţessi "öfl" voru skólunum oft erfiđ
Pólitískar ákvarđanir - ekki embćttismanna eđa sérfrćđinga
Endurreisn Hólaskóla á Hólum í Hjaltadal og stofnun Háskólans á Akureyri voru pólitískar ákvarđanir á sínum tíma, teknar af alţingi fyrir ţrýsting grasrótar, en ekki sérfrćđinga eđa kerfisákvarđanir eđa međ bođvaldi ráđherra ađ ofan.
Hugsjónin sem bar ţessa skóla áfram var drifin fram af grasrótinni,- vildi efla fjölbreyttni,- sem ţótti vćnt um skólana,- stađina og ţá menntun, starf og ímynd sem ţeir gáfu byggđarlagi sínu og ţar međ landsmönnum öllum
Mér finnst nú í umrćđunni sömu öfl og sömu úrtöluraddir vera uppi sem voru andvig endurreisn Hólaskóla og sérskólum yfirleitt - sem vildu leggja Menntaskólann á Akureyri niđur og svelta hann inn í samrćmda fjölbrautaskóla kerfiđ, sömu öfl virđast vega nú ađ Háskólum landsbyggđarinnar.
Vonandi tókst ađ hrinda ađförinni ađ Menntaskólanum á Akureyri.
En kerfiđ í "djúpríkinu" er eins og kolbrabbi sem býđur súkkulađi og sćtabrauđ međ einum arminum en bítur svo međ klónni í öđrum,
Međ sjálfstraust og baráttuvilja
Mér verđur hugsađ til gömlu skólanefndar Hólaskóla - og baráttufunda Fjórđungssambands Norđlendinga.
Höfđingjanna Gísla Pálssonar á Hofi fyrir Hóla og Áskels Einarssonar framkvćmdastjóra Fjórđungssambands Norđlendinga
Barátta ţeirra og anarra heimamanna á svćđunum á örlagatímum réđi miklu um endurreisn Hólaskóla og stofnun Háskólans á Akureyri sem tók til starfa á árunum milli 1980 - 1990 og starfa enn.
Ţađ vćri gott ađ eiga nú sterka grasrót ađ, sem gćti tekiđ yfir og leitt frumkvćđiđ í ţróun framhalds- og háskólastarfs í landinu einkum á landsbyggđinni og treyst stöđu ţeirra
Nú er hins vegar byrjađ " ofanfrá" og kerfislegu bođvaldi ráđherra beitt.
Gott er ađ muna söguna og fjöreggin geta veriđ brothćtt. vissulega eru tímarnir breyttir. En? ?
Heimildir: Lög um Háskólann á Akureyri nr. 18. 1988
Lög um Háskólann á Akureyri frá 18.05 1992
Lög um opinbera hásskóla nr. 85 frá 2008.
RÚV
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:38 | Facebook
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.