Þriðjudagur, 18. ágúst 2015
Þjóðverjar eignast flugvelli Grikklands
Gríska ríkisstjórnin samþykkti í dag að þýska fyrirtækið Fraport-Slentel tæki við rekstri fjórtán flugvalla í Grikklandi til næstu fjörutíu ára. Samningurinn er metinn á 1,23 milljarða evra, sem jafngildir um 181 milljarði íslenskra króna.Um er að ræða flugvelli á mörgum af helstu ferðamannastöðum Grikklands. Þjóðverjar taka við rekstri 14 flugvalla
Ein fyrsta krafa ESB á hendur Grikkjum var einkvæðing opinberrar þjónustu. Grikkir eru píndir til að selja kínversku fyrirtæki helstu hafnir sínar.
Nú er komið að Þjóðverjum sem fá strax í sinn hlut helstu flugvelli landsins. Þannig missir Grikkland jafnt og þétt sjálfstæði sitt og sjálfforræði.
"Seinasta ríkisstjórn Grikklands hafði náð samkomulagi við Fraport en ákveðið var að bíða með málið eftir að ríkisstjórn Alexis Tsipras, leiðtoga vinstriflokksins Syriza, komst til valda í janúarmánuði.
Gríska ríkisstjórnin staðfesti í dag að hún hefði samþykkt einkavæðinguna fyrir sitt leyti...
Þetta er fyrsta einkavæðingin sem tilkynnt er um eftir að fjármálaráðherrar evruríkjanna samþykktu á föstudaginn að veita Grikkjum 86 milljarða evra lán gegn ströngum skilyrðum.
Ríkisstjórn Tsipras hefur fallist á að selja ríkiseignir í samræmi við samkomulagið við lánardrottna Grikklands. Leigan á flugvöllunum fjórtán er liður í því samkomulagi.
Lánardrottnarnir hafa meðal annars gert þá kröfu að grísk stjórnvöld setji á stofn sérstakan fimmtíu milljarða evra sjóð um ríkiseignir sínar." Mbl.is greinir frá: Þjóðverjar taka við rekstri 14 flugvalla.
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur enn ekki samþykkt að taka þátt í "kúgunarpakka" Evrópusambandsins og segir stefnu þess alranga og muni keyra efnahag Grikkja enn dýpra niður.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:34 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.