Fimmtudagur, 12. mars 2015
Ísland ekki lengur umsóknarríki að ESB
Samkvæmt yfirlýsingu Gunnars Braga Sveinssonar utanríkisráðherra rétt í þessu er Ísland ekki lengur umsóknarríki að ESB. Þessu er hér með fagnað.
Umsóknin var hrein lögleysa frá byrjun.
Umsóknin fór efnislega í strand síðla árs 2011 þegar ég sem ráðherra hafnaði kröfumm Evrópusambandsins í sjávarútvegsmálum, landbúnaðarmálum og dýraheilbrigðismálum.
ESB neitaði að opna á viðræður um sjávarútvegsmál nema að við viðurkenndum fyrirfram forræði ESB í sjávarútvegsmálum.
Þótt mér væri síðar vikið úr ráðherrastóli vegna afstöðu minnar til inngöngu í ESB náði ríkisstjórnin ekki að breyta þeim ákvörðunum sem ég hafði þá tekið í samræmi við fyrirvara Alþingis
Ófrávíkjanleg krafa ESB um full yfirráð yfir fiskveiðiauðlindinni og samningsrétti um deilistofna við önnur ríki réð baggamunin. En fleira kom til.
Öllum viðræðum var í raun lokið og ljóst að ESB krafðist þess að Ísland gengist undir öll lög og reglur ESB, engar varanlegar undanþágur voru í boði.
Mikilvægt er að Framvæmdastjórn Evrópusambandsins staðfesti nú sín megin að þessum viðræðum sé lokið og Ísland tekið út af lista þess sem umsóknarríki.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:42 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.