Ţriđjudagur, 3. mars 2015
Ađ horfast í augu viđ veruleikann
Síđasta skođanakönnun um fylgi flokkanna undirstrikar áfram trúnađarbrestinn sem varđ milli ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurđardóttur og ţjóđarinnar; milli forystumanna Samfylkingar og Vinstri grćnna viđ kjósendur sína.
Ekki veit ég til ţess ađ Samfylkingin hafi enn gert upp innbyrđis hlut sinn í bankahruninu og Hrunstjórninni međ Sjálfstćđisflokknum.
Jóhanna Sigurđardóttir sat jú í sérstöku fjármálaráđi ríkisstjórnar Geirs Haarde.
Evrópusambandsumsóknin sem öllu átti ađ bjarga hangir enn eins og myllusteinn um háls Vinstri grćnna og Samfylkingarinnar. Enn reyna ţeir báđir ađ verja inngöngubeiđnina í ESB ţótt nánast allir sjái hversu vonlaust ţađ er.
(Vinstri flokkarnir í meiriháttar krísu og Björt framtíđ virđist varla skilja erindi sitt í pólitík ( Egill Helgason)
Forysta Vinstri Grćnna verđur ađ gera upp viđ sjálfa sig og kjósendur sína svikin viđ loforđin og stefnu flokksins ţegar hún samţykkti inngöngubeiđnina í Evrópusambandiđ.
Hjá forystu VG dugar enginn kattarţvottur, nema ţá helst "villikattaţvottur"!
Gamall krataleiđtogi, Jón Baldvin Hannibalsson sér ađ vinstri flokkar muni seint geta sameinast innbyrđis eđa sótt fram međan ESB umsóknin hangir inni. Hún kljúfi ţá jafnvel enn dýpra en hersetan gerđi á sínum tíma. ( Guđföđur ESB-umsóknar Íslands lýst ekki lengur á ESB)
Hin vonlausa ESB umsókn er ekki ţessi virđi, segir Jón Baldvin. Enda var Jón Baldvin aldrei neinn sérlegur ađdáandi Jóhönnu Sigurđardóttur. Og hversvegna skyldi Árni Páll ganga sig upp ađ hnjám og fórna flokknum fyrir ţetta eina mál Jóhönnu, inngöngu í ESB?
Samfylkingin situr uppi sem eins máls flokkur međan hún berst fyrir inngöngu í Evrópusambandiđ.
Vinstri Grćn verđa hjáróma í hvađa máli sem er međan ţau tala ekki hreint út í grundvallar stefnumáli sínu : ađ verja fullveldi ţjóđarinnar og standa utan ESB. Ef mađur er á móti inngöngu í ESB ţá er ekki sótt um. Svo einfalt er ţađ.
Flokksráđsfundir VG geta samţykkt úrsögn úr Nató, gott mál, en samtímis samţykkt ađ halda áfram göngunni inn í Evrópusambandiđ í stađ ţess ađ afturkalla umsóknina.
Ţađ er ekki mikill trúverđugleiki ţar á ferđ, ţetta er ekki einu sinni fyndiđ, heldur sorglegt fyrir okkur vinstrimenn.
Međan Ísland er umsóknarríki ađ ESB er ţađ hin opinbera stefna stjórnvalda ađ komast ţar inn.
Ríkisstjórnarflokkarnir báđir lofuđu ţví fyrir kosningar ađ hćtta viđ umsóknina, sem ţýđir beint ađ hún verđi afturkölluđ.
Ţegar allt kemur saman ćtti ţađ ađ vera beinn hagur allra flokka á alţingi ađ umsóknin um inngöngu í Evrópusambandiđ verđi afturkölluđ hiđ snarasta.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 4.3.2015 kl. 13:27 | Facebook
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.