Miðvikudagur, 17. september 2014
Formaður samninganefndar við ESB gerður að ráðuneytisstjóra!
Utanríkisráðherra verðlaunar leiðtoga ESB umsóknarinnar hér á landi
Formaður utanríkismálanefndar Alþingis allt síðasta kjörtímabil, Árni Þór Sigurðsson, sem leiddi beiðnina um inngöngu í Evrópusambandið var aðlaður fyrir framgönguna og gerður að sendiherra.
Formaður samninganefndarinnar, Stefán Haukur Jóhannesson sem Össur Skarphéðinsson réði til að leiða aðlögunarsamningana inn í ESB hefur verið skipaður ráðuneytisstjóri í utanríkisráðuneytinu, og það án auglýsingar. Stefán Haukur skipaður ráðuneytisstjóri í utanríkisráðuneytinu
Ísland er áfram virkt umsóknarríki að ESB. Kosningaloforðin um afturköllun umsóknarinnar eru hins vegar vandlega geymd niðri í skúffu en áherslur ríkisstjórnarinnar í ESB málinu tala sínu máli með nýlegum mannaráðningum?
Það líður að landsfundum ríkisstjórnarflokkanna og þá verða afrekin rakin í einu stærsta kosningamálinu, afturköllun umsóknarinnar.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:37 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.